Er hægt að nota TREC til að greina meðfædda ónæmisgalla?
|
|
- Roberta Thompson
- 6 years ago
- Views:
Transcription
1 Er hægt að nota TREC til að greina meðfædda ónæmisgalla? Bergljót Rafnar Karlsdóttir Ritgerð í barnalæknisfræði Læknadeild Heilbrigðisvísindasvið Háskóli Íslands Maí 2015
2 Er hægt að nota TREC til að greina meðfædda ónæmisgalla? Lengi hefur þekkst að skima fyrir vissum göllum hjá nýburum fljótlega eftir fæðingu. Þessir gallar eiga það sameiginlegt að vera alvarlegir og sjaldgæfir en jafnframt að minnsta kosti að einhverju leyti meðhöndlanlegir. Þekktasta dæmið er líklega skimun fyrir efnaskiptagallanum PKU (phenylketonuria) með blóðdropa teknum úr hæl nýburans. Frá upphafi nýburaskimunar um miðja síðustu öld hefur tækninni fleygt fram og nú er hægt að gera ítarlegar rannsóknir á erfðaefni í litlu blóðsýni. Því liggur beint við að nota þá tækni til þess að skima fyrir fleiri sjúkdómum. Þegar ákveðið er að hefja skimun fyrir sjúkdómi er mikilvægt að skimprófið hafi hátt næmi og sértæki fyrir sjúkdómnum. Þetta er til að sem flest tilfelli finnist en ekki séu margir sem fái falsk-jákvæða niðurstöðu. Staðlaðar leiðbeiningar um framkvæmd og niðurstöður prófsins eru nauðsynlegar. Einnig er mikilvægt að góð og gagnreynd meðferð fyrirfinnist við viðkomandi sjúkdómi svo gagn hljótist af greiningunni. Vega þarf og meta kostnað skimunarinnar móti meðferðarkostnaði sé sjúkdómurinn greindur eftir að einkenni koma fram. Að lokum er ákjósanlegt að prófunin sjálf sé einföld, sársaukalaus fyrir sjúklinginn og ódýr í framkvæmd. Flokkur sjúkdóma sem mikilvægt er að greina snemma eru meðfæddir ónæmisgallar eða PID (primary immunodeficiencies). Ónæmisgallar gera að verkum að sjúklingur er útsettur fyrir endurteknum sýkingum sem geta haft mikil áhrif á lífsgæði og lifun. Til meðfæddra ónæmisgalla teljast yfir 200 þekktir sjúkdómar og er nýgengi þeirra talið vera 1/1200 lifandi fæddra barna. Flokkun sjúkdómanna fer eftir meingerð, það er hvaða þáttur ónæmiskerfisins á í hlut, og þeim einkennum sem fylgja. Dæmi um meðfæddan ónæmisgalla er SCID (severe combined immunodeficiency) sem er breitt svið sjúkdóma sem ýmist valda T-eitilfrumugalla eða T- og B-frumugalla. SCID er banvænt ástand sé sjúkdómurinn ekki meðhöndlaður og fer lifun sjúklings að miklu leyti eftir hversu snemma meðferð er hafin. Þar sem fæstir sjúklinganna hafa fjölskyldusögu um sjúkdóminn og einkenni koma sjaldnast fram fyrr en tækifærissýkingar hefjast væri mikill fengur í almennu skimprófi fyrir SCID. 1
3 Mögulegur vettvangur skimunar er mæling á TREC (T-cell receptor excision circle) til greiningar á meðfæddum ónæmisgöllum á borð við SCID. T-eitilfrumur eru framleiddar í beinmerg en þroskast í hóstarkirtli. Þær gegna lykilhlutverki í frumubundnu ónæmissvari ónæmiskerfissins. Í hóstarkirtlinum endurraðast gen T- frumuviðtakans sem gefur T-frumum möguleika á að þekkja mikinn fjölda próteinbúta. Á meðan á þessu ferli stendur myndast TREC, hringlaga DNA bútur sem finnst eingöngu í T-eitilfrumum sem eru innan hóstarkirtilsins eða hafa nýlega yfirgefið hann. TREC er ekki afritað við frumuskiptingu og því getur magn TREC mælt með PCR (polymerase chain reaction) eða öðrum sambærilegum aðferðum gefið upplýsingar um fjölda óþroskaðra T-fruma. Blóðsýni úr heilbrigðum nýburum innihalda eitt TREC fyrir hverjar tíu T-frumur en nýburar með SCID hafa afar lágt eða ómælanlegt TREC. Þannig gefur lágt gildi TREC skimunar vísbendingu um T- eitilfrumufæð í nýburanum hvort sem hún er vegna lélegrar framleiðslu eða taps á T- frumum. Þessi ritgerð leitast við að svara þeirri spurningu hvort TREC megi nota til að greina meðfædda ónæmisgalla. Aðferðir Við heimildaleit var stuðst við greinar í gagnagrunninum PubMed sem fundust við leit með orðunum t-cell receptor excision circles. Einnig var vefsíðan Uptodate.com notuð við grunnupplýsingaöflun sem og kennslubókin Nelson Essentials of Pediatrics eftir Marcdante og Kliegman. Nýburaskimun á TREC hófst í Wisconsin í Bandaríkjunum árið 2008 og hefur fest sig í sessi í þó nokkrum ríkjum til viðbótar síðan þá. Magnmæling TREC er framkvæmd á sama blóðsýni og er notað við skimun á PKU, vanstarfsemi skjaldkirtils og fleiri kvillum en sýnið er tekið með lítilli stungu í hæl nýburans og telst því afar lítið inngrip. Reynist skimprófið jákvætt (<25 TREC/µl í flestum rannsóknum) þarf frekari greiningarvinnu til að ákvarða hvort nýburinn þjáist af SCID eða annarri orsök T-eitilfrumufæðar. Helstu heimildir voru yfirlitsgreinar um árangur TREC nýburaskimprófana í Bandaríkjunum. 2
4 Niðurstaða og umræður Meðfæddir ónæmisgallar sem finnast við TREC skimun í nýburum eru alvarlegir sjúkdómar sem hafa mikil áhrif á líf sjúklingsins. Þar má nefna SCID en niðurstöður samantektarrannsóknar frá Primary Immune Deficiency Treatment Consortium sýndu að lifun SCID sjúklinga var 94% fengi barnið meðferð fyrir 3,5 mánaða aldur en einungis 50% hjá börnum eldri en 3,5 mánaða sem voru sýkt meðan á meðferð stóð. Það skiptir því miklu máli að greina SCID snemma til að koma í veg fyrir tækifærissýkingar og veita meðferð við sjúkdómnum en meðferðin er oft í formi beinmergsskipta. Aðrir sjúkdómar sem geta fundist fyrir tilstilli skimunar á TREC eru þeir sem valda T-frumufæð, bæði hvað varðar magn fruma og fjölbreytileika. Þetta eru sjúkdómar á borð við erfðaheilkenni Downs og DiGeorges, aðrar gerðir SCID (Variant SCID, Leaky SCID) og Omenn heilkenni. Því má segja að þó meginhlutverk TREC skimunar verði að öllum líkindum að finna einstaklinga með dæmigert SCID þá geti einnig fundist vísbendingar um aðra sjúkdóma við skimunina. Næmi TREC skimunar er afar gott til greiningar á SCID, allt upp í 100%. Einnig er sértækið jafnvel betra en við önnur skimpróf sem þegar tíðkast eða um og undir 0,1% eftir rannsóknum. Það merkir að í 0,1% tilfella þurfi að endurtaka prófun af einhverjum orsökum. Einn vankantur á TREC skimuninni er sá að sjúkdómarnir sem skimað er fyrir eru sjaldgæfir. Nýgengi SCID er um það bil 1/ lifandi fæddra í bandarísku þýði. Til samanburðar er nýgengi PKU, sem skimað hefur verið fyrir á Íslandi frá árinu 1972, 1/8400 lifandi fæddra á Íslandi samkvæmt rannsókn Oddasonar og félaga í Læknablaðinu Skimun nýbura í Kaliforníu fann einungis 50 börn sem höfðu marktæka T-frumufæð og þörfnuðust frekari rannsókna. Því má velta fyrir sér hvort að skimun á þjóðarvísu yrði kostnaðarlega hagkvæm. Annar galli er að þrátt fyrir hátt næmi og sértæki TREC skimunar við greiningu á SCID þá getur TREC ekki skimað fyrir öllum meðfæddum ónæmisgöllum heldur eingöngu þeim sem hafa áhrif á fjölda T-fruma. Þar með greinast ekki gallar sem hafa áhrif á T-frumuvirkni eða sem einskorðast við aðra hluta ónæmiskerfisins á borð við vessabundið ónæmi og neutrofíla. Neikvæð skimun á TREC útilokar því ekki meðfæddan ónæmisgalla og er mikilvægt að vera á varðbergi gagnvart einkennum þeirra eins og vaxtarskerðingu og endurteknum, alvarlegum sýkingum. 3
5 Að lokum má nefna að TREC magn er gjarnan lágt í fyrirburum. Því hefur bæst í vinnureglur að endurtaka prófun hjá þeim, til að mynda við 37 vikna meðgöngulengd, til samanburðar á fyrri mælingu svo útiloka megi falsk-jákvætt svar. Lokaorð Meðfæddir ónæmisgallar eru alvarlegir sjúkdómar sem koma gjarnan fram í börnum án fjölskyldusögu og einkenni gera ekki vart við sig fyrr en endurteknar og illviðráðanlegar sýkingar skjóta upp kollinum. Nýburaskimun á TREC magni hefur hátt næmi og sértæki við greiningu á SCID og getur gefið vísbendingu um aðra ónæmisgalla sem mikilvægt er að greina og meðhöndla snemma. Þar að auki er prófið ódýrt og einfalt í framkvæmd. Helstu gallar skimunarinnar eru lágt nýgengi sjúkdómanna sem skimað er fyrir og að ekki er hægt að útiloka ónæmisgalla sem herja á aðra hluta ónæmiskerfisins. Niðurstaða höfundar er sú að TREC skimun sé góð leið til skimunar á vissum meðfæddum ónæmisgöllum og það sé vel þess vert að skoða hvort bæta eigi TREC mælingum við nýburaskimun á Íslandi. Heimildir 1. van der Spek, J., et al., TREC Based Newborn Screening for Severe Combined Immunodeficiency Disease: A Systematic Review. J Clin Immunol, Kwan, A., et al., Newborn screening for severe combined immunodeficiency and T-cell lymphopenia in California: results of the first 2 years. J Allergy Clin Immunol, (1): p Puck, J.M., Laboratory technology for population-based screening for severe combined immunodeficiency in neonates: the winner is T-cell receptor excision circles. J Allergy Clin Immunol, (3): p
Málsýni. Aðferð til að meta málþroska barna. Jóhanna Einarsdóttir, Ester Sighvatsdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir
Málsýni Aðferð til að Jóhanna Einarsdóttir, Ester Sighvatsdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir Málsýni hvað er það?? Málsýni þýðing á enska orðinu language sample Dæmi um málsýni Notað í rannsóknum um máltöku
More informationAlgengi og nýgengi (Fjöldi sjúklinga)
Lewy sjúkdómur Friederich (Fritz) Heinrich Lewy var gyðingur, fæddur í Berlín árið 1885 (1). Hann lauk læknanámi 1910 í heimborg sinni og sérhæfði sig síðan í taugalæknisfræði, taugameinafræði og einnig
More informationKennaraglósur Excel Flóknari aðgerðir: Solver
Kennaraglósur Excel Flóknari aðgerðir: Solver 14 1 Excel Solver Excel Solver er viðbót (e. add-in) við Excel sem hjálpar til að finna bestu lausn á viðfangsefnum eins og þegar um er að ræða takmarkaðar
More informationTryggð viðskiptavina við banka í kjölfar bankahrunsins. Þórhallur Guðlaugsson dósent Friðrik Eysteinsson aðjunkt
Tryggð viðskiptavina við banka í kjölfar bankahrunsins Þórhallur Guðlaugsson dósent Friðrik Eysteinsson aðjunkt Rannsóknarspurningin Treystir fólk sínum viðskiptabanka betur en öðrum og gæti það verið
More informationGagnasafnsfræði. Páll Melsted 16. sept
Gagnasafnsfræði Páll Melsted 16. sept Endurtekin gildi Ef við viljum losna við endurtekin gildi er hægt að nota DISTINCT SELECT DISTINCT name FROM MovieExec, Movie, StarsIn WHERE cert = producerc AND title
More informationSykursýkisdagbók ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI JANÚAR 2014 (BYGGT Á DIABETES HEALTH RECORD FRÁ THE DIABETES COALTILATION OF CALIFORNIA.)
Sykursýkisdagbók ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI JANÚAR 2014 (BYGGT Á DIABETES HEALTH RECORD FRÁ THE DIABETES COALTILATION OF CALIFORNIA.) www.landspitali.is Nafn Læknir Hjúkrunarfræðingur Símanúmer Ræddu eftirfarandi
More informationAlzheimers-sjúkdómur. Jón Snædal yfirlæknir, öldrunarlækningadeild
Alzheimers-sjúkdómur Jón Snædal yfirlæknir, öldrunarlækningadeild LSH Landakoti Hvað er Alzheimers-sjúkdómur? Alzheimers-sjúkdómur er hrörnunarsjúkdómur í heila og er án þekktrar ástæðu í flestum tilfellum.
More informationSamtök iðnaðarins. - Viðhorf félagsmanna til Evrópumála
Samtök iðnaðarins - Viðhorf félagsmanna til Evrópumála Framkvæmdarlýsing - félagsmannakönnun Unnið fyrir Markmið Samtök iðnaðarins Að kanna viðhorf félagsmanna SI til Evrópumála og þróun þar á Framkvæmdatími
More informationHugbúnaður kemur ekki í stað fólks! Camilla Ósk Hákonardóttir
Hugbúnaður kemur ekki í stað fólks! Camilla Ósk Hákonardóttir 1 Hvað er stjórnun viðskiptatengsla (CRM)? Stjórnun viðskiptatengsla er hugmyndafræði Stjórnun viðskiptatengsla er stefna Stjórnun viðskiptatengsla
More informationÁhrif aldurs á skammtímaminni
Háskóli Íslands 7.5.2000 Félagsvísindadeild Þroski og lífstíðarþróun (10.02.02) Áhrif aldurs á skammtímaminni Tryggvi R. Jónsson (191177-3989) Ólafur Magnússon Kennari: Sigurður J. Grétarsson Rannsókn
More informationÁhrif staðsetningar og útfærslu mislægra gatnamóta á umferðaröryggi
Áhrif staðsetningar og útfærslu mislægra Rannsóknarverkefni Vegagerðarinnar Janúar 206 www.vso.is Borgartún 20 585 9000 05 Reykjavík vso@vso.is 575 S:\205\575\v\Greinagerð\575_Greinargerð.docx Janúar 206
More information1 Inngangur Hvað er frammistöðumat og hvernig á að mæla það? gráðu mat/endurgjöf Gagnrýni á 360 gráðu mat...
Efnisyfirlit 1 Inngangur... 1 2 Hvað er frammistöðumat og hvernig á að mæla það?... 2 2.1 Ávinningur frammistöðumats... 4 2.2 Framkvæmd frammistöðumatsins... 5 2.3 Hver á að meta hvern?... 5 3 360 gráðu
More informationGóðkynja einstofna mótefnahækkun (MGUS) og mallandi mergæxli
Mergæxli Krabbamein í beinmerg Þessi bæklingur er gefinn út af IMF og hefur verið lesinn yfir og samþykktur af Perluvinum félagi um mergæxli á Íslandi. www.krabb.is/myeloma Þýtt og staðfært af Kristrúnu
More informationInngangur. Web ADI skjöl. Október, 2018 [WEB ADI - NOTENDALEIÐBEININGAR]
Inngangur Nokkrar stofnanir nota Web ADI (Web Oracle Applications Desktop Integrator) til að skrá fylgiskjöl í Excel og flytja síðan færslurnar í fjárhag Orra (GL). Með útgáfu 12.2.7 af Orra breytist virknin
More informationEfnisyfirlit. Útdráttur.3. Inngangur Almennt um heilabilun og Alzheimers-sjúkdóminn... 6
Efnisyfirlit Útdráttur.3 Inngangur...3 1. Almennt um heilabilun og Alzheimers-sjúkdóminn... 6 1.1 Heilabilun og Alzheimers-sjúkdómurinn skilgreind (DSM-IV)... 6 1.2 Algengi heilabilunar og Alzheimers-sjúkdómsins...
More informationTónlist og einstaklingar
Tónlist og einstaklingar Áhrif tónlistariðkunar og áheyrnar Kristinn Arnar Benjamínsson Lokaverkefni til BA-prófs Uppeldis- og menntunarfræðideild Tónlist og einstaklingar Áhrif tónlistariðkunar og áheyrnar
More informationBA ritgerð. Tengsl milli ADHD og vímuefnaneyslu barna og ungmenna
BA ritgerð Félagsráðgjöf Tengsl milli ADHD og vímuefnaneyslu barna og ungmenna Úrræði Hekla Dögg Ásmundsdóttir Gyða Hjartardóttir Maí 2017 Tengsl milli ADHD og vímuefnaneyslu barna og ungmenna Úrræði
More informationHvernig er að greinast með Alzheimer sjúkdóminn? Megindleg rannsókn á viðhorfum sjúklinga
Hvernig er að greinast með Alzheimer sjúkdóminn? Megindleg rannsókn á viðhorfum sjúklinga Berglind Anna Magnúsdóttir Ritgerð til B.S. gráðu Háskóli Íslands Heilbrigðisvísindasvið Læknadeild 1 Hvernig er
More informationGerð einstaklingsbundinna áætlana um stuðning, byggðar á niðurstöðum um mat á stuðningsþörf (SIS) Tryggvi Sigurðsson, sviðsstjóri
Gerð einstaklingsbundinna áætlana um stuðning, byggðar á niðurstöðum um mat á stuðningsþörf (SIS) Tryggvi Sigurðsson, sviðsstjóri Umfjöllun 1. Stutt lýsing á Mati á stuðningsþörf: SIS 2. Einstaklingsbundnar
More informationHvaða einkenni fylgja MBL skorti?
Hvaða einkenni fylgja MBL skorti? Birta Dögg Ingudóttir Andrésdóttir 5. árs læknanemi - Inngangur Mannose- binding lectin (MBL) er sameind búin til í lifrinni og er ein af þremur leiðum sem líkaminn notar
More informationGeislunarvísar og bestun í stafrænni röntgenmyndagerð
Geislunarvísar og bestun í stafrænni röntgenmyndagerð Karin Elisabeth Pålsson Ritgerð til meistaragráðu Háskóli Íslands Læknadeild Námsbraut í Geislafræði Heilbrigðisvísindasvið Geislunarvísar og bestun
More information4) Þá ertu kominn inná routerinn og ætti valmyndin að líta út eins og sýnt er hér til hægri. 5) Því næst er smellt á Wizard setup
Hægt er að tengjast við Zyxel 660W beininn bæði þráðlaust eða með netkapli í netkort tölvunnar. Stilla þarf tölvuna þannig að hún sæki sjálfkrafa IP tölu (Optain an IP Address Automatically). Mismunandi
More informationHáskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindadeild Kennaraskor Leikskólabraut Lesum saman. Hvaða áhrif hefur lestur á börn?
Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindadeild Kennaraskor Leikskólabraut 29 Lesum saman Hvaða áhrif hefur lestur á börn? Guðríður Anna Sveinsdóttir Lokaverkefni Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindadeild
More informationÞekking almennings á Alzheimers sjúkdómnum
Þekking almennings á Alzheimers sjúkdómnum Hilmar Pétur Sigurðsson Lokaverkefni til BS-gráðu Sálfræðideild Heilbrigðisvísindasvið Þekking almennings á Alzheimers sjúkdómnum Hilmar Pétur Sigurðsson Lokaverkefni
More informationTengsl skotleikjaspilunar og árásarhneigðar.
Tengsl skotleikjaspilunar og árásarhneigðar. Greining á rannsókn meðal grunnskólabarna á Íslandi Arnór Helgi Knútsson HUG- OG FÉLAGSVÍSINDASVIÐ Lokaverkefni til BA gráðu í Sálfræði Sálfræðideild Maí 2015
More informationÞekkingarstig eineltis í framhaldsskólum:
Hug- og félagsvísindasvið Kennaradeild-menntavísindabraut Þekkingarstig eineltis í framhaldsskólum: Endurskoðun á forvörnum og eineltisstefnum í framhaldsskóla Eva Dröfn Möller Akureyri Júní, 2013 Háskólinn
More informationSkimun fyrir þunglyndi aldraðra Fræðileg samantekt
Skimun fyrir þunglyndi aldraðra Fræðileg samantekt SUNNA EIR HARALDSDÓTTIR LOKAVERKEFNI TIL BS PRÓFS Í HJÚKRUNARFRÆÐI 12 EININGAR LEIÐBEINANDI: ÞÓRA JENNÝ GUNNARSDÓTTIR, LEKTOR JÚNÍ 2011 iii Þakkarorð
More informationSjúkdómsvæðing hegðunar:
Lokaverkefni til MA prófs í félagsfræði Sjúkdómsvæðing hegðunar: Hlutverk skólans í greiningarferli ADHD Anna Soffía Víkingsdóttir Febrúar 2016 Sjúkdómsvæðing hegðunar: Hlutverk skólans í greiningarferli
More informationHVERNIG ER HÆGT AÐ KOMA Í VEG FYRIR BYLTUR HJÁ ÖLDRUÐUM?
HVERNIG ER HÆGT AÐ KOMA Í VEG FYRIR BYLTUR HJÁ ÖLDRUÐUM? Þórlína Sveinbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur, Hlíf Guðmundsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun BYLTUR ERU eitt af algengustu viðfangsefnum öldrunarhjúkrunar.
More informationUppsetning á Opus SMS Service
Uppsetning á Opus SMS Service Undirbúningur Þetta þarf að vera til staðar: Opus SMS Service á að vera sett upp móðurtölvunni sem hýsir gagnagrunninn. Notandinn sem er innskráður á tölvunni þarf að vera
More informationENDURMAT Á STUÐNINGSÞÖRF
ENDURMAT Á STUÐNINGSÞÖRF Aðdragandi Framkvæmd Niðurstöður Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins Október 2015 Endurmat á stuðningsþörf Aðdragandi Framkvæmd Niðurstöður Tryggvi Sigurðsson Greiningar- og
More informationÞjónustukönnun Landspítala, maí 2012
Þjónustukönnun 2012-1 Þjónustukönnun Landspítala, maí 2012 Niðurstöður könnunar á viðhorfum fullorðinna legudeildarsjúklinga til þjónustu á Landspítala. Ábyrgðarmenn Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri
More informationOFBELDI (HUGTAKALEIKUR)
OFBELDI (HUGTAKALEIKUR) Aldur nemenda: 10 ára og upp úr Viðfangsefni: ofbeldi, einelti, samskipti Færnimarkmið: Hugtakaleikir ná að þjálfa flesta færniþætti samræðunnar Viðhorfamarkmið: Hugtakaleikir ná
More informationSkimun eftir krabbameini í ristli og endaþarmi (KRE) á Íslandi
2015 Forvörn er fyrirhyggja Skimun eftir krabbameini í ristli og endaþarmi (KRE) á Íslandi RISTILSKIMUN ÁSGEIR THEODÓRS LÆKNIR, M. SCI (EMPH) TRYGGVI BJÖRN STEFÁNSSON LÆKNIR, PH.D Efnisyfirlit Inngangur...
More informationTillaga til þingsályktunar
132. löggjafarþing 2005 2006. Þskj. 13 13. mál. um skipulagða leit að krabbameini í ristli. Tillaga til þingsályktunar Flm.: Drífa Hjartardóttir, Margrét Frímannsdóttir, Ögmundur Jónasson, Guðjón A. Kristjánsson,
More informationStúlkur og Asperger-heilkenni
Stúlkur og Asperger-heilkenni Kynbundin áhrif heilkennisins á sjálfsmynd og félagslega stöðu Berglind Harpa Björnsdóttir Sally Ann Vokes Lokaverkefni til B.A.-prófs Þroskaþjálfadeild Stúlkur og Asperger-heilkenni
More informationAlzheimerssjúkdómur á miðjum aldri
Alzheimerssjúkdómur á miðjum aldri Rannsókn á aðstæðum fólks sem hefur greinst með Alzheimerssjúkdóm á Íslandi á aldrinum 45-65 ára Febrúar 2005 Hanna Lára Steinsson Minnismóttaka LSH Landakoti EFNISYFIRLIT
More informationBA ritgerð. Gleym Mér Ei
BA ritgerð Félagsráðgjöf Gleym Mér Ei Alzheimers-sjúkdómur og áhrif hans á aðstandendur. Þjónusta og úrræði. Kristín Sunna Tryggvadóttir Leiðbeinandi: Steinunn Hrafnsdóttir Febrúar 2017 1 Gleym Mér Ei
More informationHáskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindasvið Kennaradeild Dyslexía. Gódri háslra ðetta er lkoaverkfenið mitt um dsylxeuí
Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindasvið Kennaradeild 2010 Dyslexía Gódri háslra ðetta er lkoaverkfenið mitt um dsylxeuí Sigríður Jóhannesdóttir Leiðsögukennari: Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir Lokaverkefni
More informationMáltaka barna. Hvernig fer hún fram og hvernig má örva hana? Elsa Hannesdóttir
Máltaka barna Hvernig fer hún fram og hvernig má örva hana? Elsa Hannesdóttir Lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennarafræði Leiðsögukennari: Sigurður Konráðsson Kennaradeild Menntavísindasvið Háskóla
More informationVIÐSKIPTASVIÐ. Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM? Út frá reynslu stærstu fyrirtækja Íslands
VIÐSKIPTASVIÐ Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM? Út frá reynslu stærstu fyrirtækja Íslands Ritgerð til BS gráðu Nafn nemanda: Guðrún Erna Hafsteinsdóttir Leiðbeinandi: Haraldur Daði Ragnarsson
More informationHJÚKRUN FÓLKS MEÐ SYKURSÝKI Á HJÚKRUNARHEIMILUM
HJÚKRUN FÓLKS MEÐ SYKURSÝKI Á HJÚKRUNARHEIMILUM Margrét Ósk Vífilsdóttir HJÚKRUN EINSTAKLINGA með sykursýki er flókin og taka þarf tillit til margra atriða. Einstaklingar með sykursýki hafa margvíslegar
More informationSkimun fyrir berklum meðal gigtarsjúklinga sem hófu meðferð með. TNFα-hemlum á Íslandi
R A N N S Ó K N Skimun fyrir berklum meðal gigtarsjúklinga sem hófu meðferð með TNFα-hemlum á Íslandi 1999-2014 Þórir Már Björgúlfsson1 læknir, Gerður Gröndal1 læknir, Þorsteinn Blöndal2 læknir, Björn
More informationHvað þurfa markaðsstjórar að kunna og geta?
www.ibr.hi.is Hvað þurfa markaðsstjórar að kunna og geta? Erna Rós Kristinsdóttir Friðrik Eysteinsson Ritstjórar: Auður Hermannsdóttir Jón Snorri Snorrason Þóra Christiansen Vorráðstefna Viðskiptafræðistofnunar
More informationMeðgöngusykursýki eftirfylgni eftir fæðingu
Meðgöngusykursýki eftirfylgni eftir fæðingu Fræðileg samantekt Bryndís Ásta Bragadóttir Ritgerð til meistaragráðu (30 einingar) Hjúkrunarfræðideild Námsbraut í ljósmóðurfræði Meðgöngusykursýki eftirfylgni
More informationRonald Postma: Kitchen appliance to grow mushrooms was the project. Plugin Neon for Rhino and downloaded Bongo.
Week 3: Computer Controlled Cutting 11.2. 2015 This week we will learn about the mechanical application of computer aided design. The assignment for this week is to design, make, and document a press-
More informationÁsta Kristjana Sveinsdóttir. Fólkstegundir. Um veitingu félagslegra eiginleika
Hugur 21. ár, 2009 s. 52 62 Ásta Kristjana Sveinsdóttir Fólkstegundir Um veitingu félagslegra eiginleika Um langt skeið hefur verið umræða í fræðaheiminum, jafnt sem annars staðar, um hvort ýmis fyrirbæri
More informationÁverkar vegna ofbeldis gagnvart ungum börnum, einkenni, viðbrögð og greining.
Áverkar vegna ofbeldis gagnvart ungum börnum, einkenni, viðbrögð og greining. Höfundar: YLVA TINDBERG, med dr, överläkare, barnhälsovårdsenheten i Sörmland GABRIEL OTTERMAN, överläkare, barnskyddsteamet,
More informationEinhverfurófið og svefn
Einhverfurófið og svefn Fræðileg úttekt á meðferðarúrræðum og virkni þeirra María Kristín H. Antonsdóttir HUG- OG FÉLAGSVÍSINDASVIÐ Lokaverkefni til BA gráðu í sálfræði Félagsvísindadeild Apríl 2016 Einhverfurófið
More informationViðskiptasvið. Markaðssetning nýrrar hönnunar Lykilþættir í markaðssetningu
Viðskiptasvið Markaðssetning nýrrar hönnunar Lykilþættir í markaðssetningu Ritgerð til BA gráðu Nafn nemanda: Úlfhildur E. Þ. Bjarnasen Leiðbeinandi: Ragnar Már Vilhjálmsson vor 2014 Markaðssetning nýrrar
More informationÉg varð fyrir lúmsku einelti því þetta var aldrei líkamlegt.
Ég varð fyrir lúmsku einelti því þetta var aldrei líkamlegt. Inga Sif Ingimundardóttir Lokaverkefni til BA-prófs Uppeldis- og menntunarfræðideild Ég varð fyrir lúmsku einelti því þetta var aldrei líkamlegt
More informationMS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti. Bólusetningar barna Viðhorf verðandi foreldra. María Kristinsdóttir
MS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti Bólusetningar barna Viðhorf verðandi foreldra María Kristinsdóttir Leiðbeinandi: Auður Hermannsdóttir, aðjúnkt Viðskiptafræðideild Júní 2016 Bólusetningar barna
More informationFerhyrningurinn: Myndræn framsetning á ársreikningi
www.ibr.hi.is Ferhyrningurinn: Myndræn framsetning á ársreikningi Einar Guðbjartsson Ritstjórar: Kári Kristinsson Magnús Pálsson Þórður Óskarsson Vorráðstefna Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands: Erindi
More informationTengsl ófrjósemi og tilfinninga
Tengsl ófrjósemi og tilfinninga Áhrif ófrjósemi á einstaklinga Elín Heiða Ólafsdóttir Íris Stella Sverrisdóttir HUG- OG FÉLAGSVÍSINDASVIÐ Lokaverkefni til BA gráðu í sálfræði Hug- og félagsvísindadeild
More informationHvernig getum við uppfyllt þarfir kaupenda á netinu?
Hvernig getum við uppfyllt þarfir kaupenda á netinu? 8 janúar 2015 Áður en kaupferlið hefst Í kaupferlinu Eftir að kaupferlinu lýkur Í kaupferlinu Áður en kaupferlið hefst Vörulýsing og myndir Neytendur
More informationSvimi á bráðamóttökunni vantar okkur klíníska nefið?
Svimi á bráðamóttökunni vantar okkur klíníska nefið? Árni Egill Örnólfsson 1 læknir, Einar Hjaltested 2 læknir, Ólöf Birna Margrétardóttir 3 læknir, Hannes Petersen 4,5 læknir ÁGRIP Tillgangur: Markmið
More informationÁrangur og brottfall í hugrænni atferlismeðferð í hópi með teknu tilliti til þunglyndis, kvíða, streitu og félagsfælni
Árangur og brottfall í hugrænni atferlismeðferð í hópi með teknu tilliti til þunglyndis, kvíða, streitu og félagsfælni Einar Kristinsson HUG- OG FÉLAGSVÍSINDASVIÐ Lokaverkefni til B.A. gráðu í sálfræði
More informationVitneskja fólks um áreiðanleika frásagna barna um kynferðisbrot
Vitneskja fólks um áreiðanleika frásagna barna um kynferðisbrot Er munur á vitneskju ólíkra starfsstétta? Helga Theodóra Jónasdóttir Lokaverkefni til BS-gráðu Sálfræðideild Heilbrigðisvísindasvið Vitneskja
More informationHugvísindasvið. Heill þú farir. Um sögulegan breytileika í íslenskum kveðjum. Ritgerð til MA-prófs í íslenskum fræðum. Sigríður Sæunn Sigurðardóttir
Hugvísindasvið Heill þú farir Um sögulegan breytileika í íslenskum kveðjum Ritgerð til MA-prófs í íslenskum fræðum Sigríður Sæunn Sigurðardóttir Maí 2014 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Íslensk fræði Heill
More informationLíðan sjúklinga með langvinna lungnateppu og áherslur í líknarmeðferð
Líðan sjúklinga með langvinna lungnateppu og áherslur í líknarmeðferð Fræðileg samantekt Hildigunnur Magnúsdóttir Urður Ómarsdóttir Ritgerð til BS prófs (12 einingar) Líðan sjúklinga með langvinna lungnateppu
More informationÁgúst Einarsson. Erindi á málstofu um menningarhagfræði 11. nóv. 2003
Ágúst Einarsson Erindi á málstofu um menningarhagfræði 11. nóv. 2003 1. Lesefni og skilgreining (glærur 2-3) 2. List innan hagfræðinnar (glærur 4-10) 3. Hagræn áhrif menningar á Íslandi (glærur 11-17)
More informationEinhverfa og einstaklingsnámskrá barna
Háskólinn á Akureyri Kennaradeild Leikskólabraut 2004 Einhverfa og einstaklingsnámskrá barna Sif Jóhannsdótti Lokaverkefni í kennaradeild 1 Háskólinn á Akureyri Kennaradeild Leikskólabraut Akureyri, Apríl
More informationspjaldtölvur í skólastarfi
spjaldtölvur í skólastarfi Á tímabilinu október 2012 til febrúar 2013 hef ég, Ómar Örn Magnússon aðstoðarskólastjóri í Hagaskóla, unnið að verkefni fyrir SFS sem miðar að því að skoða kosti, möguleika
More informationVerkefnið unnu: Sædís G. Bjarnadóttir
Heilbrigðisvísindasvið Hjúkrunarfræði 2011 Sykursýki og unglingar Hvernig bregst umhverfi unglinga við þegar þeir greinast með sykursýki I Sædís Guðrún Bjarnadóttir Þorbjörg Birgisdóttir Lokaverkefni til
More informationVal starfsmanna og starfa til fjarvinnu
Háskóli Íslands 3.4.2006 Viðskipta- og hagfræðideild Vinnusálfræði Vor 2006 Val starfsmanna og starfa til fjarvinnu Tryggvi R. Jónsson Kennari: Hafsteinn Bragason og Ægir Már Þórisson Fjarvinna 2 Val starfa
More informationFréttabréf Tourette-samtakanna - janúar 2004 ==================================================
Fréttabréf Tourette-samtakanna - janúar 2004 ================================================== Efni þessa fréttabréfs Frá stjórninni Ný þýðingarverkefni á döfinni Evrópufundir Tourette samtaka Um Mozart
More informationHugvísindasvið. Annað líf. Er réttlætanlegt að ætla samþykki fyrir líffæragjöf? Ritgerð til MA-prófs í hagnýtri siðfræði.
Hugvísindasvið Annað líf Er réttlætanlegt að ætla samþykki fyrir líffæragjöf? Ritgerð til MA-prófs í hagnýtri siðfræði Héðinn Árnason September 2012 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Hagnýt siðfræði Annað
More informationEngin er rós án þyrna : Hlutverk, reglur og verkfæri í þróun rannsókna
Tímarit um menntarannsóknir, 1. árg. 2004, 9-17 9 Engin er rós án þyrna : Hlutverk, reglur og verkfæri í þróun rannsókna M. Allyson Macdonald Kennaraháskóla Íslands Inngangserindi á ráðstefnu 22. nóvember
More informationLeiðbeiningar um ávísun lyfsins
Þykkni fyrir innrennslislausn Upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsmenn er varða öryggi við notkun YERVOY Leiðbeiningar um ávísun lyfsins YERVOY (ipilimumab) er ætlað til meðferðar við langt gengnu (óskurðtæku
More informationEru börn gerendur eða bjargarlausar verur? Stuðningur við börn foreldra með geðraskanir
Eru börn gerendur eða bjargarlausar verur? Stuðningur við börn foreldra með geðraskanir Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir Lokaverkefni til BA gráðu í mannfræði Júní 2015 Eru börn gerendur eða bjargarlausar
More informationNemendur með ADHD. Úrræði kennara og aðstaða. Anna María Sanders. Lokaverkefni til BA-prófs Uppeldis- og menntunarfræðideild
Nemendur með ADHD Úrræði kennara og aðstaða Anna María Sanders Lokaverkefni til BA-prófs Uppeldis- og menntunarfræðideild Nemendur með ADHD Úrræði kennara og aðstaða Anna María Sanders Lokaverkefni til
More informationEducation Policy Analysis Edition. Greining á menntunarstefnu 2004 útgáfa. Summary in Icelandic. Útdráttur á íslensku
Education Policy Analysis -- 2004 Edition Summary in Icelandic Greining á menntunarstefnu 2004 útgáfa Útdráttur á íslensku Kafli 1 sækir aftur í þema sem fyrst var rannsakað af OECD fyrir um 30 árum og
More informationSOS! Hjálp fyrir foreldra:
SOS! Hjálp fyrir foreldra: Samantekt á niðurstöðum TOPI A og TOPI B árin 2007-2011 og heildaryfirlit fyrir árin 1998-2011. Hanna Björg Egilsdóttir Lokaverkefni til BS-gráðu Sálfræðideild Heilbrigðisvísindasvið
More informationBA ritgerð. Áhrif ADHD á nám barna og unglinga
BA ritgerð Félagsráðgjöf Áhrif ADHD á nám barna og unglinga Guðný Helena Guðmundsdóttir Leiðbeinandi Sigrún Harðardóttir Júní 2016 Áhrif ADHD á nám barna og unglinga Guðný Helena Guðmundsdóttir 040577-4759
More informationSorg og sorgarúrvinnsla barna
Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindasvið Kennaradeild 2013 Sorg og sorgarúrvinnsla barna Hvernig er hægt að koma til aðstoðar? Benný Rós Björnsdóttir Lokaverkefni Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindasvið
More informationEgggjöf Nýir draumar, ný tækifæri. Fræðileg úttekt.
Egggjöf Nýir draumar, ný tækifæri. Fræðileg úttekt. Elsa Ruth Gylfadóttir Lokaverkefni til embættisprófs Í ljósmóðurfræði (12 einingar) Leiðbeinandi: Sigríður Sía Jónsdóttir Júní 2011 iii Þakkarorð Fyrst
More informationSamtöl um dauðann. Fyrirbærafræðileg rannsókn á viðhorfum aldraðra til lífs og dauða og til meðferðar við lífslok. Ágrip
Samtöl um dauðann Fyrirbærafræðileg rannsókn á viðhorfum aldraðra til lífs og dauða og til meðferðar við lífslok Helga Hansdóttir 1 sérfræðingur í lyf- og öldrunarlækningum Sigríður Halldórsdóttir 2 hjúkrunarfræðingur,
More informationSkýrsla starfshóps sem á að finna leiðir til að sporna gegn heimilisofbeldi sem hinsegin fólk verður fyrir
12.01.2018 Skýrsla starfshóps sem á að finna leiðir til að sporna gegn heimilisofbeldi sem hinsegin fólk verður fyrir Efnisyfirlit 1. Inngangur... 2 2. Skilgreiningar... 3 3. Hinsegin fólk og heimilisofbeldi...
More informationBörnum straffað með hendi og vendi. Barnaverndartilkynningar er varða líkamlegt ofbeldi gagnvart börnum
Börnum straffað með hendi og vendi Barnaverndartilkynningar er varða líkamlegt ofbeldi gagnvart börnum Steinunn Bergmann 2010 1 Formáli Rannsókn þessi á tilkynningum til barnaverndarnefnda er varða grun
More informationBS ritgerð. Tengsl húðkroppunaráráttu við áráttu- og þráhyggjueinkenni, fullkomnunaráráttu og tilfinningar um að eitthvað sé ekki alveg rétt
BS ritgerð Tengsl húðkroppunaráráttu við áráttu- og þráhyggjueinkenni, fullkomnunaráráttu og tilfinningar um að eitthvað sé ekki alveg rétt Erna Sigurvinsdóttir Sálfræðideild Heilbrigðisvísindasvið Leiðbeinendur:
More informationFacebook og flokkarnir: Rannsókn á notkun íslenskra stjórnmálaflokka á samfélagsmiðlum
n Fræðigreinar STJÓRNMÁL Facebook og flokkarnir: Rannsókn á notkun íslenskra stjórnmálaflokka á samfélagsmiðlum Baldvin Þór Bergsson, doktorsnemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands Útdráttur Vægi samfélagsmiðla
More informationEiga brjóstagjöf og svefn ungbarna samleið?
Eiga brjóstagjöf og svefn ungbarna samleið? Væntingar og veruleiki Berglind A. Zoëga Magnúsdóttir Ólafía Sólveig Einarsdóttir Ritgerð til BS prófs (12 einingar) Eiga brjóstagjöf og svefn ungbarna samleið?
More informationVanræktir sjúkdómar þróunarlanda yfirlit
Vanræktir sjúkdómar þróunarlanda yfirlit Júlíus Kristjánsson 1 læknanemi, Sigurður Guðmundsson 2 læknir Á g r i p Vanræktir sjúkdómar þróunarlanda er eins konar samheiti fyrir fjölbreyttan hóp smitsjúkdóma.
More informationSkráning lýsigagna samkvæmt kröfum INSPIRE - Leiðbeiningar -
Skráning lýsigagna samkvæmt kröfum INSPIRE - Leiðbeiningar - V201111072 Anna Guðrún Ahlbrecht Saulius Prizginas Landmælingar Íslands Akranesi 29.01.2013 Efnisyfirlit Inngangur...3 Lýsigögn skráð frá grunni
More informationSjálfræði og fólk sem þarf mikinn stuðning í daglegu lífi
Netla Veftímarit um uppeldi og menntun Menntavísindasvið Háskóla Íslands Ritrýnd grein birt 31. desember 2015 Yfirlit greina Guðrún V. Stefánsdóttir Sjálfræði og fólk sem þarf mikinn stuðning í daglegu
More informationSpilin á borðið. Eigindleg rannsókn á íslenskum pókerspilurum. Sævar Skúli Þorleifsson. Lokaverkefni til BA gráðu í Félagsfræði.
Spilin á borðið Eigindleg rannsókn á íslenskum pókerspilurum. Sævar Skúli Þorleifsson Lokaverkefni til BA gráðu í Félagsfræði Félagsvísindasvið Spilin á borðið: Eigindleg rannsókn á íslenskum pókerspilurum
More informationHvað er barni fyrir bestu. Úttekt á samstarfi Leikskóla Reykjavíkur og Barnaverndar Reykjavíkur
, 23 31 23 Hvað er barni fyrir bestu. Úttekt á samstarfi Leikskóla Reykjavíkur og Barnaverndar Reykjavíkur Anna María Jónsdóttir, Félagsráðgjafi Í eftirfarandi grein eru dregnar saman fræðilegar heimildir
More informationTilvist og uppbygging áfallaáætlana í grunnskóla
Ráðstefnurit Netlu Menntakvika 2010 Menntavísindasvið Háskóla Íslands Grein birt 31. desember 2010 Gunnar E. Finnbogason og Hildur Björg Gunnarsdóttir Tilvist og uppbygging áfallaáætlana í grunnskóla Í
More informationEins og ég sagði í byrjun, þegar ég var að leita að öfgadæmi, þá get ég ef til vill ekki leyft mér að
March 2008 Volume 3, Number 1 Flavio Baroncelli - Staðalímyndir og sannleikur 1 translated by Egill Arnarson Eins og ég sagði í byrjun, þegar ég var að leita að öfgadæmi, þá get ég ef til vill ekki leyft
More informationÞvingun og valdbeiting á heimilum fatlaðs fólks
Háskóli Íslands Hugvísindasvið Heimspeki Þvingun og valdbeiting á heimilum fatlaðs fólks Ritgerð til BA-prófs í heimspeki Friðrik Atlason Kt.: 051275-4389 Leiðbeinandi: Vilhjálmur Árnason Febrúar 2017
More informationTölvupóstuppsetning á GSM síma
Tölvupóstuppsetning á GSM síma Motorola Triplets, E398, V3, V80, V220, V300 og V600 Undirbúningur...2 Uppsetningin...3 Að athuga með nýjan póst...4 Að sækja póst þegar GPRS reiki er ekki í boði...4 Um
More informationVefskoðarinn Internet Explorer
Vefskoðarinn Internet Explorer Sitt lítið af hverju um IE6 Í flestum tilfellum er hægt að opna IE með því að tvísmella á táknmynd þess á skjáborðinu eða smella einu sinni á tákn þess á flýtistikunni (Quick
More informationKristín Rún Friðriksdóttir, Ragnheiður Halldórsdóttir, Eydís K. Sveinbjarnardóttir og Páll Biering
Kristín Rún Friðriksdóttir, Ragnheiður Halldórsdóttir, Eydís K. Sveinbjarnardóttir og Páll Biering Börn sem eiga foreldra með geðsjúkdóma Kristín Rún Friðriksdóttir er hjúkrunarfræðingur, BS, á Vogi. Ragnheiður
More informationÓsk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um undanþágu vegna fagráðs um styrkflokkað timbur
Miðvikudagur, 4. júlí 2012 Ákvörðun nr. 15/2012 Ósk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um undanþágu vegna fagráðs um styrkflokkað timbur I. MÁLAVEXTIR OG MÁLSMEÐFERÐ Samkeppniseftirlitinu barst erindi þann 30.
More informationCAD/CAM tölvutækni í tannlækningum
CAD/CAM tölvutækni í tannlækningum Notkun og útbreiðsla CAD/CAM á Íslandi Alexander Mateev Lokaverkefni til BS gráðu Leiðbeinandi: Peter Holbrook CAD/CAM tölvutækni í tannlækningum; notkun og útbreiðsla
More informationElli. Ari Hlynur Guðmundsson. Lokaritgerð til BA-prófs Listaháskóli Íslands Hönnunar- og arkitektúrdeild
Elli Barnabók um ADHD Ari Hlynur Guðmundsson Lokaritgerð til BA-prófs Listaháskóli Íslands Hönnunar- og arkitektúrdeild Elli Barnabók um ADHD Ari Hlynur Guðmundsson Lokaverkefni til BA-prófs í grafískri
More informationBágt er að berja höfðinu við steininn
Bágt er að berja höfðinu við steininn Um tengsl skammtíma- og langtímaafleiðinga heilaáverka Thelma Rún van Erven Lokaverkefni til B.Sc.-gráðu Sálfræðideild Heilbrigðisvísindasvið Bágt er að berja höfðinu
More informationLokaverkefni til B.Ed. -prófs. Syngjum saman. -vefur með sönglögum, texta og gripum- Dagmar Þórdísardóttir
Lokaverkefni til B.Ed. -prófs Syngjum saman -vefur með sönglögum, texta og gripum- Dagmar Þórdísardóttir Kennaraháskóli Íslands Kennarabraut, leikskólakennarafræði Maí 2008 Lokaverkefni til B.Ed. -prófs
More informationLokaverkefni til B.Ed. -prófs. Gagnvirkar töflur. Greinargerð með heimasíðu og kennslumyndböndum. Hólmfríður Ásmundsdóttir
Lokaverkefni til B.Ed. -prófs Gagnvirkar töflur Greinargerð með heimasíðu og kennslumyndböndum Hólmfríður Ásmundsdóttir 270369-5459 Háskóli Íslands Menntavísindasvið Kennaradeild, grunnskólakennarafræði
More informationMS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti. Notkun Facebook til markaðsfærslu á Íslandi
MS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti Notkun Facebook til markaðsfærslu á Íslandi Eigindleg og megindleg rannsókn Guðjón Aðalsteinn Guðmundsson Leiðbeinandi: Auður Hermannsdóttir Viðskiptafræðideild
More information