Tölvupóstuppsetning á GSM síma

Size: px
Start display at page:

Download "Tölvupóstuppsetning á GSM síma"

Transcription

1 Tölvupóstuppsetning á GSM síma Motorola Triplets, E398, V3, V80, V220, V300 og V600 Undirbúningur...2 Uppsetningin...3 Að athuga með nýjan póst...4 Að sækja póst þegar GPRS reiki er ekki í boði...4 Um aðrar Internetveitur...5 Hvert get ég leitað eftir meiri upplýsingum?...5 Höfundaréttur Síminn. Allur réttur áskilinn. Útgáfa 2, Apríl 2005 Bls. 1 af 5 Síminn Apríl 2005

2 Tölvupóstuppsetning á GSM síma Motorola E398, V220, V300, V600 og V80 Þessar leiðbeiningar innihalda stillingar fyrir tölvupóstþjónustu Símans Internet, en notendur annarra Internetveitna geta að sjálfsögðu haft þær til hliðsjónar við uppsetningu sinna póstfanga. Ef tölvupósturinn þinn er ekki hjá Símnet, skoðaðu þá kaflann Um aðrar Internetveitur á bls. 6 til að fá nánari upplýsingar um hvernig tölvupósturinn er settur upp. Motorola E398, V300, V600, V80 geta meðhöndlað POP3 og IMAP tölvupóst með innbyggðu tölvupóstforriti í gegnum GPRS tengingu eða CSD (GSM data) tengingu. Þær stillingar sem þarf til að sækja tölvupóst eru þær sömu og þarf í póstforrit venjulegrar PC tölvu, það er að segja notendanafn, lykilorð, netfang og heiti póstþjóns er það sama og notað er í tölvupóstforritinu í venjulegum tölvum. Þessi uppsetning er alls ekki flókin, þótt hún kunni að líta út fyrir það, en það er töluvert magn af upplýsingum sem slá þarf inn. Ef þessum leiðbeiningum er fylgt nákvæmlega ætti allt að ganga vel. Nokkrir tenglar í þessu skjali vísa á vefsíður á Internetinu. Það er því nauðsynlegt notuð sé nettengd tölva þegar farið er eftir þessum leiðbeiningum. Undirbúningur 1. Sæktu WAP stillingar í símann ef hann er ekki nú þegar stilltur fyrir WAP. Til að athuga hvort síminn sé uppsettur fyrir WAP, ýttu þá Örvatakkanum niður eða farðu inn í Menu og veldu Web Access og Browser. Ef síminn tengist og WAP síða Símans birtist, er síminn þinn tilbúinn 2. Ef þú býst við að nota GPRS mikið, er ráðlegt að skoða GPRS verðskrá Símans og velja áskriftarleið við hæfi. 3. Til að setja tölvupóstinn upp í símann þarftu að hafa eftirfarandi upplýsingar við höndina: Netfangið þitt Notandanafnið fyrir tölvupóstinn (venjulega það sem þú notar þegar þú tengist netinu, oft fyrri hluti netfangs) Leyniorðið þitt Það skaðar ekki að vita nafnið á póstþjóni fyrir innkominn póst (Incoming mai) Þessar upplýsingar fékkst þú frá Internetþjónustunni þinni þegar þú fékkst Internetáskriftina þína. Athugaðu að vefpóst, eins og hotmail.com og visir.is er ekki hægt að sækja í símann á þennan hátt. Bls. 2 af 5 Síminn Apríl 2005

3 Uppsetningin Smelltu á örina upp og farðu inn í Msgs. Þú getur einnig ýtt á hnappinn og valið Menu > Messages og valið þar Msgs. Ef Message inbox Requires Setup kemur á skjáinn skalt þú smella á Setup. Ef það kemur ekki upp smelltu þá á Hér koma eftirfarandi stillingar: hnappinn og veldu Msg Setup. ISP settings: Veldu þetta og ýttu á Change. Hér koma eftirfarandi stillingar: Connection type: GPRS APN address: wap.simi.is. User name: Þessi reitur á að vera auður Password: Þessi reitur á að vera auður DNS IP: Þessi reitur á að vera auður Smelltu á Done að þessu loknu. Provider: Símnet (eða Custom, ef Símnet er ekki á listanum). Ef Símnet er valið er þegar búið að fylla inn hluta af stillingunum og þarf aðeins að setja inn þær stillingar sem eru inni í kössum hér fyrir aftan. Það er ekki nauðsynlegt að breyta þeim stillingum sem eru á gráum grunni, til að geta sótt póst, en þær auka mjög á þægindi. User ID: Hér kemur notandanafnið þitt. (venjulega fyrri hluti netfangs) Password: Hér kemur leyniorðið þitt Sending host: postur.simnet.is (Getur verið forstillt sem: ) Sending port: 25 Receiving host: postur.simnet.is (Getur verið forstillt sem: ) Receiving port: 110 Return address: Hér skrifar þú netfangið þitt Name: Hér kemur nafnið þitt Cleanup: Hér getur þú valið hvort síminn eyði út gömlum skilaboðum sjálfkrafa úr minni símans Save on server: YES ef þú vilt að síminn geymi afrit af sendum skeytum á póstþjóni, ef þú velur NO eyðir hann skeytunum af póstþjóninum eftir að þau hafa verið sótt í símann. Síminn getur ekki skoðað viðhengi, því er öllu jafna ekki mælt með að stilla á NO. notify: YES ef þú vilt að síminn birti tilkynningu um nýjann tölvupóst Check new msgs: Þú getur látið símann vakta pósthólfið þitt. Þá athugar hann hvort nýr tölvupóstur hafi borist á þeim fresti sem þú tiltekur. Það getur verið kostnaðarsamt að láta símann athuga með póst með stuttu millibili. Hide Fields: hér getur þú ráðið hvort CC og BCC reitirnir séu í boði þegar senda á póst úr símanum Auto signature: Hér getur þú sett inn staðlaða undirskrift sem bætt er inn í allann póst sem þú sendir úr símanum, til dæmis Þe Size restriction: Hér getur þú takmarkað stærð þeirra skeita sem sótt eru er upphafsstillingin.láttu hana hald sér ef þú ert ekki viss hvernig á að fara með þetta. Þá er uppsetningunni lokið. Ýttu á vinstri valmyndatakkann, sem stendur Done fyrir ofan til að ljúka uppsetningunni. Bls. 3 af 5 Síminn Apríl 2005

4 Að athuga með nýjan póst Farðu inn í: Menu Messages, Msgs Á skjáinn kemur Connect to remote mailbox? Veldu YES til að tengjast. Connecting to mailbox kemur á skjáinn og síminn athugar hvort póstur bíði þín. Að sækja tölvupóst utan Íslands Ef þú ætlar sækja og senda tölvupóst utan Íslands er ekki víst að Síminn hafi GPRS reikisamning á áfangastað þínum. Kynntu þér GPRS reiki Símans á simi.is. Ef GPRS reiki er í boði á áfangastað þínum, þarft þú aðeins að láta símann þinn tengjast réttu kerfi í viðkomandi landi. (T.d. Sonofon í Danmörku) og nota símann á sama hátt og hérna heima. Þú þarft ekki að breyta neinum stillingum fyrir GPRS. Ef GPRS er ekki í boði á áfangastað er hægt að nota CSD (GSM Data) tengingu. Hér að neðan eru upplýsingar um hvernig eigi að nota og setja upp slíka tengingu. Þótt ferð til útlanda sé ekki á döfinni er ágætt að stilla þetta samt inn, þá er síminn tilbúinn þegar til þarf. Að sækja póst þegar GPRS reiki er ekki í boði Smelltu á örina upp og farðu inn í Msgs. Þú getur einnig ýtt á hnappinn og valið Menu > Messages og valið þar Msgs. Ef tölvupósturinn hefur þegar verið uppsettur kemur spuningin Connect to remote mailbox? á skjáinn. Veldu NO. Smelltu nú á Hér koma eftirfarandi stillingar: hnappinn og veldu Msg Setup. ISP settings: (Hér koma stillingar um hvernig síminn tengist Internetinu) Connection type: Breyttu Connection type í CSD Dial-Up Number: User name: Þessi reitur á að vera auður Password: Þessi reitur á að vera auður DNS IP: Þessi reitur á að vera auður Bakkaðu nú út og notaðu tölvupóstinn eins og áður. Þegar heim er komið nægir að breyta Connection type aftur í GPRS eins og sýnt er hér að ofan. Bls. 4 af 5 Síminn Apríl 2005

5 Um aðrar Internetveitur. Ef tölvupósturinn þinn er hýstur af annarri internetveitu en Símnet þarf að athuga eftirfarandi: Notendur hjá öðrum internetveitum þurfa að nota annan Incoming Server í lið 3 á blaðsíðu 2 en allt annað á að vera eins. Hugsanlega notar Internetveitan þín annað port, en þá breytir þú því bara. Sumar internetveitur takmarka aðgang að tölvupóstþjónum sínum. Til að sækja póst frá þeim þarf að tengjast Internetveitunni sem tölvupóstþjónninn tilheyrir eða nota SMTP heimild. Upplýsingar um þetta getur þú fengið hjá Internetveitunni þinni, annað hvort á vefsíðu þeirra, eða með því að hafa samband við hana á annan hátt. Ef þú hefur samband við Internetveituna, þarftu að spyrja eftirfarandi spurninga: Hvað heitir Incoming mail serverinn ykkar? Eru notuð önnur port en venjulega? Ef já, hver eru portnúmerin? Skiptir máli hvaða Internetveita er notuð til að hægt sé að tengjast póstþjóninum ykkar? (Eða er hægt að tengjast Símnet og sækja póst frá póstþjóninum ykkar?) o Ef svarið er já, getur þú notað póstþjóninn postur.simnet.is til að senda póst. Ef þú vilt nota póstþjón internetveitunnar þinnar verður þú að setja upp GSM data tengingu eins og lýst er í kaflanum Að sækja póst þegar GPRS reiki er ekki í boði á bls. 5, nema hvað nú þarftu að hafa innhringinúmer internetveitunnar þinnar og notendanafn og lykilorð (Username & Password) Til baka í leiðbeiningar Hvert get ég leitað eftir meiri upplýsingum? Þegar þú tengist Internetinu í gegnum GPRS tengist þú inn á Internetið í gegnum Internetgátt Símans Internet. Upplýsingar um allt sem tengist GPRS tengingunni sjálfri getur þú fengið með því að senda tölvupóst til gprs@siminn.is og verður reynt að greiða úr þínum málum eins og frekast er unnt. Tölvupósturinn þinn getur verið hýstur hjá öðrum Internetveitum, eins og til dæmis Margmiðlun og Vortex. Upplýsingar um uppsetningu netfanga frá þessum og öðrum Internetveitum eru veittar á heimasíðum þeirra og í þjónustusímum. Síminn / Þjónustuver Símans hefur því miður ekki upplýsingar um stillingar þessara fyrirtækja. Ef þú hefur athugasemdir eða spurningar, sendu þær þá til gprs@siminn.is Bls. 5 af 5 Síminn Apríl 2005

Tölvupóstuppsetning á GSM síma

Tölvupóstuppsetning á GSM síma Tölvupóstuppsetning á GSM síma Samsung D500 Undirbúningur... 2 Uppsetningin... 3 Að athuga með nýjan póst... 5 Að skipta um pósthólf í notkun... 5 Um aðrar Internetveitur.... 6 Hvert get ég leitað eftir

More information

Uppsetning á Opus SMS Service

Uppsetning á Opus SMS Service Uppsetning á Opus SMS Service Undirbúningur Þetta þarf að vera til staðar: Opus SMS Service á að vera sett upp móðurtölvunni sem hýsir gagnagrunninn. Notandinn sem er innskráður á tölvunni þarf að vera

More information

4) Þá ertu kominn inná routerinn og ætti valmyndin að líta út eins og sýnt er hér til hægri. 5) Því næst er smellt á Wizard setup

4) Þá ertu kominn inná routerinn og ætti valmyndin að líta út eins og sýnt er hér til hægri. 5) Því næst er smellt á Wizard setup Hægt er að tengjast við Zyxel 660W beininn bæði þráðlaust eða með netkapli í netkort tölvunnar. Stilla þarf tölvuna þannig að hún sæki sjálfkrafa IP tölu (Optain an IP Address Automatically). Mismunandi

More information

Kennaraglósur Excel Flóknari aðgerðir: Solver

Kennaraglósur Excel Flóknari aðgerðir: Solver Kennaraglósur Excel Flóknari aðgerðir: Solver 14 1 Excel Solver Excel Solver er viðbót (e. add-in) við Excel sem hjálpar til að finna bestu lausn á viðfangsefnum eins og þegar um er að ræða takmarkaðar

More information

Uppsetning á biðlarahugbúnaði (ALEPH GUI client): útg í Windows 7, 8 og 10.

Uppsetning á biðlarahugbúnaði (ALEPH GUI client): útg í Windows 7, 8 og 10. Uppsetning á biðlarahugbúnaði (ALEPH GUI client): útg. 22.1.7 í Windows 7, 8 og 10. Landskerfi bókasafna - Dögg Hringsdóttir síðast breytt mars 2017 ÁRÍÐANDI: Innskráður Windows notandi við uppsetningu

More information

Sykursýkisdagbók ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI JANÚAR 2014 (BYGGT Á DIABETES HEALTH RECORD FRÁ THE DIABETES COALTILATION OF CALIFORNIA.)

Sykursýkisdagbók ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI JANÚAR 2014 (BYGGT Á DIABETES HEALTH RECORD FRÁ THE DIABETES COALTILATION OF CALIFORNIA.) Sykursýkisdagbók ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI JANÚAR 2014 (BYGGT Á DIABETES HEALTH RECORD FRÁ THE DIABETES COALTILATION OF CALIFORNIA.) www.landspitali.is Nafn Læknir Hjúkrunarfræðingur Símanúmer Ræddu eftirfarandi

More information

Inngangur. Web ADI skjöl. Október, 2018 [WEB ADI - NOTENDALEIÐBEININGAR]

Inngangur. Web ADI skjöl. Október, 2018 [WEB ADI - NOTENDALEIÐBEININGAR] Inngangur Nokkrar stofnanir nota Web ADI (Web Oracle Applications Desktop Integrator) til að skrá fylgiskjöl í Excel og flytja síðan færslurnar í fjárhag Orra (GL). Með útgáfu 12.2.7 af Orra breytist virknin

More information

Zotero sett upp á Windows stýrikerfi

Zotero sett upp á Windows stýrikerfi Zotero sett upp á Windows stýrikerfi Athugaðu að þú þarft að vera í Firefox til að geta notað Zotero. Zotero hjálparforritið samanstendur eiginlega af tvem forritsbútum. Annar keyrir í vafranum þínum og

More information

Tryggð viðskiptavina við banka í kjölfar bankahrunsins. Þórhallur Guðlaugsson dósent Friðrik Eysteinsson aðjunkt

Tryggð viðskiptavina við banka í kjölfar bankahrunsins. Þórhallur Guðlaugsson dósent Friðrik Eysteinsson aðjunkt Tryggð viðskiptavina við banka í kjölfar bankahrunsins Þórhallur Guðlaugsson dósent Friðrik Eysteinsson aðjunkt Rannsóknarspurningin Treystir fólk sínum viðskiptabanka betur en öðrum og gæti það verið

More information

Málsýni. Aðferð til að meta málþroska barna. Jóhanna Einarsdóttir, Ester Sighvatsdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir

Málsýni. Aðferð til að meta málþroska barna. Jóhanna Einarsdóttir, Ester Sighvatsdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir Málsýni Aðferð til að Jóhanna Einarsdóttir, Ester Sighvatsdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir Málsýni hvað er það?? Málsýni þýðing á enska orðinu language sample Dæmi um málsýni Notað í rannsóknum um máltöku

More information

Kynning á CareLink hugbúnaði. Að finna mikilvægt púsl í sykurstjórnun og hjálpa þér við að bæta meðferðina þína

Kynning á CareLink hugbúnaði. Að finna mikilvægt púsl í sykurstjórnun og hjálpa þér við að bæta meðferðina þína Kynning á CareLink hugbúnaði Að finna mikilvægt púsl í sykurstjórnun og hjálpa þér við að bæta meðferðina þína Sigrún Sigurðardóttir Medtronic - InterMedica Efni Að kynna CareLink meðferðarstjórnunar hugbúnað

More information

Vefskoðarinn Internet Explorer

Vefskoðarinn Internet Explorer Vefskoðarinn Internet Explorer Sitt lítið af hverju um IE6 Í flestum tilfellum er hægt að opna IE með því að tvísmella á táknmynd þess á skjáborðinu eða smella einu sinni á tákn þess á flýtistikunni (Quick

More information

Ronald Postma: Kitchen appliance to grow mushrooms was the project. Plugin Neon for Rhino and downloaded Bongo.

Ronald Postma: Kitchen appliance to grow mushrooms was the project. Plugin Neon for Rhino and downloaded Bongo. Week 3: Computer Controlled Cutting 11.2. 2015 This week we will learn about the mechanical application of computer aided design. The assignment for this week is to design, make, and document a press-

More information

RefWorks - leiðbeiningar

RefWorks - leiðbeiningar RefWorks - leiðbeiningar www.refworks.com Munið ONLINE HELP Helstu kostir RefWorks: Unnið í forritinu yfir Internetið hvaðan sem er og gögnin geymast á netinu. Hægt að hlaða niður tilvísunum beint og óbeint

More information

Skráning lýsigagna samkvæmt kröfum INSPIRE - Leiðbeiningar -

Skráning lýsigagna samkvæmt kröfum INSPIRE - Leiðbeiningar - Skráning lýsigagna samkvæmt kröfum INSPIRE - Leiðbeiningar - V201111072 Anna Guðrún Ahlbrecht Saulius Prizginas Landmælingar Íslands Akranesi 29.01.2013 Efnisyfirlit Inngangur...3 Lýsigögn skráð frá grunni

More information

Hvernig getum við uppfyllt þarfir kaupenda á netinu?

Hvernig getum við uppfyllt þarfir kaupenda á netinu? Hvernig getum við uppfyllt þarfir kaupenda á netinu? 8 janúar 2015 Áður en kaupferlið hefst Í kaupferlinu Eftir að kaupferlinu lýkur Í kaupferlinu Áður en kaupferlið hefst Vörulýsing og myndir Neytendur

More information

Notandaleiðbeiningar Rental Inspection for Annata Dynamics RENT on Windows 8.1

Notandaleiðbeiningar Rental Inspection for Annata Dynamics RENT on Windows 8.1 Notandaleiðbeiningar Rental Inspection for Annata Dynamics RENT on Windows 8.1 Halldór Vilhjálmsson Sindri Már Sigfússon Sverrir Snævar Jónsson Efnisyfirlit Notandaleiðbeiningar... 0 Rental Inspection

More information

Gagnasafnsfræði. Páll Melsted 16. sept

Gagnasafnsfræði. Páll Melsted 16. sept Gagnasafnsfræði Páll Melsted 16. sept Endurtekin gildi Ef við viljum losna við endurtekin gildi er hægt að nota DISTINCT SELECT DISTINCT name FROM MovieExec, Movie, StarsIn WHERE cert = producerc AND title

More information

RefWorks - leiðbeiningar

RefWorks - leiðbeiningar RefWorks - leiðbeiningar www.refworks.com Munið ONLINE HELP Helstu kostir RefWorks: Unnið í forritinu yfir Internetið hvaðan sem er og gögnin geymast á netinu Hægt að hlaða niður tilvísunum beint og óbeint

More information

Stefna RIM um gagnaleynd

Stefna RIM um gagnaleynd Stefna RIM um gagnaleynd Research In Motion Limited, dótturfyrirtæki þess og samstarfsfyrirtæki ( RIM ) skuldbinda sig til að viðhalda langtímastefnu um gagnaleynd og öryggi persónuupplýsinga þinna, þ.e.

More information

Hugbúnaður kemur ekki í stað fólks! Camilla Ósk Hákonardóttir

Hugbúnaður kemur ekki í stað fólks! Camilla Ósk Hákonardóttir Hugbúnaður kemur ekki í stað fólks! Camilla Ósk Hákonardóttir 1 Hvað er stjórnun viðskiptatengsla (CRM)? Stjórnun viðskiptatengsla er hugmyndafræði Stjórnun viðskiptatengsla er stefna Stjórnun viðskiptatengsla

More information

Leiðarvísir að tölvuþjónustu Reiknistofnunar

Leiðarvísir að tölvuþjónustu Reiknistofnunar Nýnemar Hvar eru tölvuver? Hvernig tengi ég fartölvuna við þráðlausa netið? Hvar fæ ég aðgang að Uglu? Hvernig nálgast ég tölvupóstinn minn? Leiðarvísir að tölvuþjónustu Reiknistofnunar Flip over for English

More information

Samtök iðnaðarins. - Viðhorf félagsmanna til Evrópumála

Samtök iðnaðarins. - Viðhorf félagsmanna til Evrópumála Samtök iðnaðarins - Viðhorf félagsmanna til Evrópumála Framkvæmdarlýsing - félagsmannakönnun Unnið fyrir Markmið Samtök iðnaðarins Að kanna viðhorf félagsmanna SI til Evrópumála og þróun þar á Framkvæmdatími

More information

Reynsla hugbúnaðardeildar Símans við notkun Scrum og Kanban

Reynsla hugbúnaðardeildar Símans við notkun Scrum og Kanban Reynsla hugbúnaðardeildar Símans við notkun Scrum og Kanban 8. febrúar 2013 Eiríkur Gestsson Um mig Eiríkur Gestsson Tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík 2004 Hugur hf. og HugurAx frá 2004 til

More information

VIÐAUKI VIÐ THE BLACKBERRY SOLUTION LEYFISSAMNINGINN FYRIR BLACKBERRY VIÐSKIPTALEGA SKÝJAÞJÓNUSTU FYRIR MICROSOFT OFFICE 365 ( VIÐAUKINN )

VIÐAUKI VIÐ THE BLACKBERRY SOLUTION LEYFISSAMNINGINN FYRIR BLACKBERRY VIÐSKIPTALEGA SKÝJAÞJÓNUSTU FYRIR MICROSOFT OFFICE 365 ( VIÐAUKINN ) VIÐAUKI VIÐ THE BLACKBERRY SOLUTION LEYFISSAMNINGINN FYRIR BLACKBERRY VIÐSKIPTALEGA SKÝJAÞJÓNUSTU FYRIR MICROSOFT OFFICE 365 ( VIÐAUKINN ) MIKILVÆGAR TILKYNNINGAR: Til þess að fá aðgang að og/eða nota

More information

FA EIGNAKERFIÐ. Notendahandbók. vegna biðskrá

FA EIGNAKERFIÐ. Notendahandbók. vegna biðskrá FA EIGNAKERFIÐ Notendahandbók vegna biðskrá Útgáfa 1.0 Efnisyfirlit 1.1. Inngangur... 3 2. Skráning eigna sem koma frá öðrum kerfishlutum... 4 2.1. Að skilgreina eign í biðskrá og bóka í eignakerfi...

More information

SNJALLÖRYGGI NOTENDALEIÐBEININGAR. Askalind 1 Kópavogur Sími Njarðarnesi 1 Akureyri Sími Nánar á oryggi.is

SNJALLÖRYGGI NOTENDALEIÐBEININGAR. Askalind 1 Kópavogur Sími Njarðarnesi 1 Akureyri Sími Nánar á oryggi.is SNJALLÖRYGGI NOTENDALEIÐBEININGAR SNJALLÖRYGGI Askalind 1 Kópavogur Sími 570 2400 Njarðarnesi 1 Akureyri Sími 470 2400 Nánar á oryggi.is TIL HAMINGJU MEÐ SNJALLÖRYGGIÐ Öryggismiðstöðin hefur allt frá árinu

More information

Skráning lýsigagna - Landupplýsingagáttin - Leiðbeiningar

Skráning lýsigagna - Landupplýsingagáttin - Leiðbeiningar Skráning lýsigagna - Landupplýsingagáttin - Leiðbeiningar V201111072 Anna Guðrún Ahlbrecht Saulius Prizginas Landmælingar Íslands Akranesi 22.08.2014 Efnisyfirlit Inngangur...3 Lýsigögn skráð í Landupplýsingagátt

More information

Grunnnámskeið í. forritsins. Einfaldlega Frontpage Námsefni á námskeiði kenndu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, sumarið 2001.

Grunnnámskeið í. forritsins. Einfaldlega Frontpage Námsefni á námskeiði kenndu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, sumarið 2001. Einfaldlega Frontpage 2000 S.Fjalar, vor 2001 Grunnnámskeið í notkun Frontpage forritsins Námsefni á námskeiði kenndu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, sumarið 2001. Sigurður Fjalar Jónsson Einfaldlega

More information

STAFRÆN. ljósmyndun. Karl Jeppesen og Marteinn Sigurgeirsson

STAFRÆN. ljósmyndun. Karl Jeppesen og Marteinn Sigurgeirsson Karl Jeppesen og Marteinn Sigurgeirsson Námsgagnastofnun 2007 Efnisyfirlit Stafræn myndavél Stafræna filman..................... 3 Yfirfærsla til tölvu.................... 4 Yfirfærsla beint frá myndavél...........

More information

spjaldtölvur í skólastarfi

spjaldtölvur í skólastarfi spjaldtölvur í skólastarfi Á tímabilinu október 2012 til febrúar 2013 hef ég, Ómar Örn Magnússon aðstoðarskólastjóri í Hagaskóla, unnið að verkefni fyrir SFS sem miðar að því að skoða kosti, möguleika

More information

BLACKBERRY LAUSNAR LEYFISSAMNINGUR

BLACKBERRY LAUSNAR LEYFISSAMNINGUR BLACKBERRY LAUSNAR LEYFISSAMNINGUR VINSAMLEGAST LESTU ÞETTA SKJAL VANDLEGA ÁÐUR EN ÞÚ SETUR UPP EÐA NOTAR HUGBÚNAÐINN. ÞESSI SAMNINGUR INNIHELDUR ÁKVÆÐI SEM TAKMARKA EÐA ÚTILOKA ÁBYRGÐ RIM GAGNVART ÞÉR

More information

The students sat in serried ranks, They wrote with all their might. But as they wrote it all by rote, They did not write it right.

The students sat in serried ranks, They wrote with all their might. But as they wrote it all by rote, They did not write it right. NÁMSMAT Á NÝRRI ÖLD The students sat in serried ranks, They wrote with all their might. But as they wrote it all by rote, They did not write it right. The studetns wrote in serried ranks, Their writing

More information

Notandahandbók Xperia M dual C2004/C2005

Notandahandbók Xperia M dual C2004/C2005 Notandahandbók Xperia M dual C2004/C2005 Efnisyfirlit Xperia M dual Notandahandbók...6 Síminn tekinn í notkun...7 Android hvað og hvers vegna?...7 Skjávernd...7 Kveikt og slökkt á tækinu... 7 Skjálás...

More information

Vefsmíðar. Kóðinn, HTML og CSS. Þessi bók er hluti af þriggja bóka flokki, hinar eru Viðmót, hönnun og verklag og Dreamweaver og önnur tól

Vefsmíðar. Kóðinn, HTML og CSS. Þessi bók er hluti af þriggja bóka flokki, hinar eru Viðmót, hönnun og verklag og Dreamweaver og önnur tól Vefsmíðar Kóðinn, HTML og CSS Þessi bók er hluti af þriggja bóka flokki, hinar eru Viðmót, hönnun og verklag og Dreamweaver og önnur tól Allar bækurnar eru aðgengilegar án endurgjalds á http://where.is/handbok

More information

Þunglyndi og depurð. Leiðbeiningabæklingur

Þunglyndi og depurð. Leiðbeiningabæklingur Þunglyndi og depurð Leiðbeiningabæklingur Dæmi um hugsanir tveggja þunglyndra einstaklinga Mér líður eins og ég sé alein og yfirgefin, ég hitti vini mína aldrei núorðið, ætli þeir hafi ekki gefist upp

More information

Lokaverkefni til B.Ed. -prófs. Gagnvirkar töflur. Greinargerð með heimasíðu og kennslumyndböndum. Hólmfríður Ásmundsdóttir

Lokaverkefni til B.Ed. -prófs. Gagnvirkar töflur. Greinargerð með heimasíðu og kennslumyndböndum. Hólmfríður Ásmundsdóttir Lokaverkefni til B.Ed. -prófs Gagnvirkar töflur Greinargerð með heimasíðu og kennslumyndböndum Hólmfríður Ásmundsdóttir 270369-5459 Háskóli Íslands Menntavísindasvið Kennaradeild, grunnskólakennarafræði

More information

Tölvuorðabókin hefur verið sett upp á neti Alþingis. Hana má finna með því að fara í START og ALL PROGRAMS. Eftirfarandi orðabækur eru aðgengilegar:

Tölvuorðabókin hefur verið sett upp á neti Alþingis. Hana má finna með því að fara í START og ALL PROGRAMS. Eftirfarandi orðabækur eru aðgengilegar: Tölvuorðabókin Almennt Tölvuorðabókin hefur verið sett upp á neti Alþingis. Hana má finna með því að fara í START og ALL PROGRAMS. Eftirfarandi orðabækur eru aðgengilegar: Ensk-íslensk og íslensk-ensk

More information

Hvað eru ICC litaprófílar? Til hvers eru þeir?

Hvað eru ICC litaprófílar? Til hvers eru þeir? Hvað eru ICC litaprófílar? Til hvers eru þeir? Icc prófílar eru uppsláttartöflur sem innihalda annarsvegar RGB eða CMYK tölur og annarsvegar CIE L*a*b* eða CIE XYZ litalíkönum og lýsa samhenginu milli

More information

OFBELDI (HUGTAKALEIKUR)

OFBELDI (HUGTAKALEIKUR) OFBELDI (HUGTAKALEIKUR) Aldur nemenda: 10 ára og upp úr Viðfangsefni: ofbeldi, einelti, samskipti Færnimarkmið: Hugtakaleikir ná að þjálfa flesta færniþætti samræðunnar Viðhorfamarkmið: Hugtakaleikir ná

More information

I. Erindi Atlassíma ehf.

I. Erindi Atlassíma ehf. Málefni: Bráðabirgðaákvörðun um númeraflutning I. Erindi Atlassíma ehf. Með tölvupósti, dags. 24. apríl 2006, barst Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) kvörtun frá Atlassíma ehf. um að Síminn hf. hefði synjað

More information

Leiðbeinandi: Snorri Guðjónsson. Lærum að útbúa PDF

Leiðbeinandi: Snorri Guðjónsson. Lærum að útbúa PDF Leiðbeinandi: Snorri Guðjónsson Lærum að útbúa PDF Efnisyfirlit Notkun PDF-skjala bls. 3 Berum saman Postscript (EPS) og PDF bls. 3 PDF bls. 3 Samantekt bls. 4 PDF-vinnuferlið bls. 4 Hvernig gerum við

More information

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ. Nemendur vinna hópverkefni þar sem þau þurfa að kynna sér helstu markverðu staðina

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ. Nemendur vinna hópverkefni þar sem þau þurfa að kynna sér helstu markverðu staðina Kennsluáætlun haust 2018 Enska 9. bekkur Kennsluáætlun þessi tekur mið af hæfniviðmiðum sem fram koma í Aðalnámskrá Grunnskóla og skólanámskrá Grunnskóla Grindavíkur VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI

More information

PIXELCALC: FORRIT TIL MÆLINGA Á STÆRÐ GOSMAKKA ÚT FRÁ STAFRÆNUM MYNDUM. Rögnvaldur Líndal Magnússon

PIXELCALC: FORRIT TIL MÆLINGA Á STÆRÐ GOSMAKKA ÚT FRÁ STAFRÆNUM MYNDUM. Rögnvaldur Líndal Magnússon PIXELCALC: FORRIT TIL MÆLINGA Á STÆRÐ GOSMAKKA ÚT FRÁ STAFRÆNUM MYNDUM Rögnvaldur Líndal Magnússon Jarðvísindastofnun Háskólans Háskóli Íslands maí 2012 RH-08-2012 1 PixelCalc Efnisyfirlit 1. PixelCalc

More information

Námsaðstoð í stærðfræði á netinu

Námsaðstoð í stærðfræði á netinu Námsaðstoð í stærðfræði á netinu Róbert Kjaran 30 september, 2011 1 Samantekt Tíðkast hefur að nemendur grunn- og menntaskóla leiti sér að einkakennslu utan skóla ef þeir telja sig þurfa auka hjálp við

More information

Yfirlit. Handbók útg.1.4 Nóri skráningar- og greiðslukerfi Apríl 2013 Bls.1

Yfirlit. Handbók útg.1.4 Nóri skráningar- og greiðslukerfi Apríl 2013 Bls.1 Yfirlit i. Kynning 2 i. Vefhluti 3 ii. Þjóðskrá 3 iii. Lykilorð 3 ii. Innri hluti 4 i. Almennar leiðbeiningar 5 b. Iðkendur Forráðamenn 6 i. Iðkendur. 6 ii. Bæta / fjarlægja iðkenda hjá forráðamanni. 6

More information

Kynferðisofbeldi GEGN börnum á ekki að þurfa að eiga sér stað

Kynferðisofbeldi GEGN börnum á ekki að þurfa að eiga sér stað GEYMIÐ! Kynferðisofbeldi GEGN börnum á ekki að þurfa að eiga sér stað 7 skref til verndar börnum Leiðarvísir fyrir ábyrgt fullorðið fólk Hvað er kynferðisofbeldi gegn börnum? Börn eru fengin til að taka

More information

Eins og ég sagði í byrjun, þegar ég var að leita að öfgadæmi, þá get ég ef til vill ekki leyft mér að

Eins og ég sagði í byrjun, þegar ég var að leita að öfgadæmi, þá get ég ef til vill ekki leyft mér að March 2008 Volume 3, Number 1 Flavio Baroncelli - Staðalímyndir og sannleikur 1 translated by Egill Arnarson Eins og ég sagði í byrjun, þegar ég var að leita að öfgadæmi, þá get ég ef til vill ekki leyft

More information

Áhrif aldurs á skammtímaminni

Áhrif aldurs á skammtímaminni Háskóli Íslands 7.5.2000 Félagsvísindadeild Þroski og lífstíðarþróun (10.02.02) Áhrif aldurs á skammtímaminni Tryggvi R. Jónsson (191177-3989) Ólafur Magnússon Kennari: Sigurður J. Grétarsson Rannsókn

More information

1 Inngangur Hvað er frammistöðumat og hvernig á að mæla það? gráðu mat/endurgjöf Gagnrýni á 360 gráðu mat...

1 Inngangur Hvað er frammistöðumat og hvernig á að mæla það? gráðu mat/endurgjöf Gagnrýni á 360 gráðu mat... Efnisyfirlit 1 Inngangur... 1 2 Hvað er frammistöðumat og hvernig á að mæla það?... 2 2.1 Ávinningur frammistöðumats... 4 2.2 Framkvæmd frammistöðumatsins... 5 2.3 Hver á að meta hvern?... 5 3 360 gráðu

More information

Claudia Hausfeld. neptún magazine #02. Myndlist Art

Claudia Hausfeld. neptún magazine #02. Myndlist Art Claudia Hausfeld fæddist í Austur-Berlín árið 1980, en er nú búsett á Íslandi. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2012. Í verkum sínum vinnur Claudia með ýmsa miðla, einkum innsetningar og

More information

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ Kennsluáætlun vorönn 2019 Enska 9. bekkur Kennsluáætlun þessi tekur mið af hæfniviðmiðum sem fram koma í Aðalnámskrá Grunnskóla og skólanámskrá Grunnskóla Grindavíkur VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI

More information

Jákvæð samskipti af hverju eru þau mikilvæg? Páll Ólafsson Félagsráðgjafi

Jákvæð samskipti af hverju eru þau mikilvæg? Páll Ólafsson Félagsráðgjafi Jákvæð samskipti af hverju eru þau mikilvæg? Páll Ólafsson Félagsráðgjafi Getur verið að þetta sé svona einfalt? Að börn þroskist best - ef þau eru elskuð fyrir það sem þau ERU en ekki vegna þess sem þau

More information

VIÐSKIPTASVIÐ. Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM? Út frá reynslu stærstu fyrirtækja Íslands

VIÐSKIPTASVIÐ. Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM? Út frá reynslu stærstu fyrirtækja Íslands VIÐSKIPTASVIÐ Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM? Út frá reynslu stærstu fyrirtækja Íslands Ritgerð til BS gráðu Nafn nemanda: Guðrún Erna Hafsteinsdóttir Leiðbeinandi: Haraldur Daði Ragnarsson

More information

Notandahandbók S302. This is the Internet version of the User guide. Print only for private use.

Notandahandbók S302. This is the Internet version of the User guide. Print only for private use. Notandahandbók S302 Þakka þér fyrir kaupin á Sony Ericsson S302. Hægt er að fá meira efni í símann á slóðinni www.sonyericsson.com/fun. Skráðu þig núna til að fá ókeypis vistunarpláss og sértilboð á www.sonyericsson.com/myphone.

More information

Þjónustukönnun Landspítala, maí 2012

Þjónustukönnun Landspítala, maí 2012 Þjónustukönnun 2012-1 Þjónustukönnun Landspítala, maí 2012 Niðurstöður könnunar á viðhorfum fullorðinna legudeildarsjúklinga til þjónustu á Landspítala. Ábyrgðarmenn Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri

More information

Val starfsmanna og starfa til fjarvinnu

Val starfsmanna og starfa til fjarvinnu Háskóli Íslands 3.4.2006 Viðskipta- og hagfræðideild Vinnusálfræði Vor 2006 Val starfsmanna og starfa til fjarvinnu Tryggvi R. Jónsson Kennari: Hafsteinn Bragason og Ægir Már Þórisson Fjarvinna 2 Val starfa

More information

SWAY SNIPPING TOOL. Sway Office 365

SWAY SNIPPING TOOL. Sway Office 365 SWAY SNIPPING TOOL Sway Office 365 https://www.microsoft.com/is-is/ Í forritinu Sway frá Microsoft er hægt að miðla upplýsingum á lifandi og skemmtilegan hátt og deila með öðrum. Skýrslur Kynningar Fréttabréf

More information

Alzheimers-sjúkdómur. Jón Snædal yfirlæknir, öldrunarlækningadeild

Alzheimers-sjúkdómur. Jón Snædal yfirlæknir, öldrunarlækningadeild Alzheimers-sjúkdómur Jón Snædal yfirlæknir, öldrunarlækningadeild LSH Landakoti Hvað er Alzheimers-sjúkdómur? Alzheimers-sjúkdómur er hrörnunarsjúkdómur í heila og er án þekktrar ástæðu í flestum tilfellum.

More information

Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindadeild Kennaraskor Leikskólabraut Lesum saman. Hvaða áhrif hefur lestur á börn?

Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindadeild Kennaraskor Leikskólabraut Lesum saman. Hvaða áhrif hefur lestur á börn? Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindadeild Kennaraskor Leikskólabraut 29 Lesum saman Hvaða áhrif hefur lestur á börn? Guðríður Anna Sveinsdóttir Lokaverkefni Háskólinn á Akureyri Hug- og félagsvísindadeild

More information

Stafræn borgaravitund

Stafræn borgaravitund Stafræn borgaravitund Verkefni handa nemendum á mið- og unglingastigi í grunnskólum Kópavogs Björn Gunnlaugsson, Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson, Kristín Björk Gunnarsdóttir og Sigurður Haukur Gíslason tóku

More information

Eftirfarandi er reynsla þriggja einstaklinga sem eiga við þráhyggju-árátturöskun að stríða...

Eftirfarandi er reynsla þriggja einstaklinga sem eiga við þráhyggju-árátturöskun að stríða... Eftirfarandi er reynsla þriggja einstaklinga sem eiga við þráhyggju-árátturöskun að stríða... Ég óttast að smitast af einhverju af öðrum, ég óttast það að sýklarnir og bakteríurnar, sem aðrir bera með

More information

Internetið og íslensk ungmenni

Internetið og íslensk ungmenni Háskóli Íslands Félagsvísindadeild Maí 2004 Internetið og íslensk ungmenni Umsjónarkennari: Guðmundur Þorkell Guðmundsson Þorbjörn Broddason 280579-4839 Útdráttur Þessari ritgerð er ætlað að sýna að hve

More information

Öryggisstefna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í upplýsingatækni

Öryggisstefna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í upplýsingatækni Öryggisstefna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í upplýsingatækni Samþykkt í framkvæmdastjórn HSS 18. apríl 2007 Unnið af nefnd um öryggi í upplýsingatækni skipaðri af framkvæmdastjórn HSS í febrúar 2007

More information

Stylistic Fronting in corpora

Stylistic Fronting in corpora 2017. In Syntactic Variation in Insular Scandinavian, ed. by Höskuldur Thráinsson, Caroline Heycock, Hjalmar P. Petersen & Zakaris Svabo Hansen, 307 338 [Studies in Germanic Linguistics 1]. Amsterdam:

More information

Verkbeiðna- og verkáætlunarkerfi

Verkbeiðna- og verkáætlunarkerfi Verkbeiðna- og verkáætlunarkerfi fyrir vegagerðarverk Heimir Þór Gíslason 30 ECTS eininga ritgerð til meistaraprófs (MSc) í byggingaverkfræði með sérhæfingu í umferð og skipulagi Júní 2014 Verkbeiðna-

More information

skjá kort mús floppý ESD móðurborð tölva stýrikerfi kælivifta kort Harður diskur ROM SATA minni Tölvur og nettækni drif RAM tengibrú snúningshraði

skjá kort mús floppý ESD móðurborð tölva stýrikerfi kælivifta kort Harður diskur ROM SATA minni Tölvur og nettækni drif RAM tengibrú snúningshraði SATA minni stýrikerfi örgjörvi kort tengibrú PATA tölva Rafbók floppý snúningshraði vinnslu loft hraði RAM hugbúnaður kælivifta USB íhlutur Harður diskur drif lyklaborð kort diskur TB kæling skjá aflgjafi

More information

Samkeyrsla Scrum og Kanban með áherslu á yfirsýn verkefna

Samkeyrsla Scrum og Kanban með áherslu á yfirsýn verkefna Háskóli Íslands Iðnaðarverkfræði,- vélaverkfræði og tölvunarfræðideild MPM(402F) Lokaverkefni MPM nám í verkefnastjórnun Vormisseri 2010 Samkeyrsla Scrum og Kanban með áherslu á yfirsýn verkefna Nemandi:

More information

Lokaverkefni til BS- prófs. í viðskiptafræði

Lokaverkefni til BS- prófs. í viðskiptafræði Lokaverkefni til BS- prófs í viðskiptafræði Val á utanlandsferðum Hvað ræður vali neytenda á ferðum erlendis í frí? Kristjana Diljá Þórarinsdóttir Auður Hermannsdóttir, aðjúnkt Október 2016 Val á utanlandsferðum

More information

FYRSTI ÍSLENSKI VEFURINN

FYRSTI ÍSLENSKI VEFURINN RHÍ Fréttir Fréttabréf Reiknistofnunar Háskóla Íslands Númer 38 febrúar 2003 FYRSTI ÍSLENSKI VEFURINN Í nóvember 2002 minntust starfsmenn Reiknistofnunar þess að áratugur var liðinn frá því að fyrsti vefþjónn

More information

Gerð einstaklingsbundinna áætlana um stuðning, byggðar á niðurstöðum um mat á stuðningsþörf (SIS) Tryggvi Sigurðsson, sviðsstjóri

Gerð einstaklingsbundinna áætlana um stuðning, byggðar á niðurstöðum um mat á stuðningsþörf (SIS) Tryggvi Sigurðsson, sviðsstjóri Gerð einstaklingsbundinna áætlana um stuðning, byggðar á niðurstöðum um mat á stuðningsþörf (SIS) Tryggvi Sigurðsson, sviðsstjóri Umfjöllun 1. Stutt lýsing á Mati á stuðningsþörf: SIS 2. Einstaklingsbundnar

More information

Yfirlýsing varðandi heilsufar og tryggingarhæfi Trygging endurvakin

Yfirlýsing varðandi heilsufar og tryggingarhæfi Trygging endurvakin Samningsnúmer Nafn Yfirlýsing varðandi heilsufar og tryggingarhæfi Trygging endurvakin Statement of Health and Insurability Reinstatement of Cover Það geta verið fleiri en ein ástæða fyrir því að við óskum

More information

MS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti. Notkun Facebook til markaðsfærslu á Íslandi

MS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti. Notkun Facebook til markaðsfærslu á Íslandi MS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti Notkun Facebook til markaðsfærslu á Íslandi Eigindleg og megindleg rannsókn Guðjón Aðalsteinn Guðmundsson Leiðbeinandi: Auður Hermannsdóttir Viðskiptafræðideild

More information

um lífi Si fræ i fyr ir ungt fólk Vinnublöð

um lífi Si fræ i fyr ir ungt fólk Vinnublöð Lei flín um lífi Si fræ i fyr ir ungt fólk Vinnublöð Leonore Brauer Dr. Richard Breun Dr. Astrid Erdmann Maritta Schöne Íslensk þýðing: 2008 Skúli Pálsson Gefið út með leyfi Ernst Klett Schulbuchverlag

More information

Lokaverkefni Vorönn Tölvunarfræðideild. Boggan - Slysavarnaskóli sjómanna - Hönnunarskýrsla - Kennari: Hallgrímur Arnaldsson

Lokaverkefni Vorönn Tölvunarfræðideild. Boggan - Slysavarnaskóli sjómanna - Hönnunarskýrsla - Kennari: Hallgrímur Arnaldsson Háskólinn í Reykjavík Kerfisfræði HMV / BS. Tölvunarfræði Lokaverkefni Vorönn 2015 Tölvunarfræðideild Boggan - Slysavarnaskóli sjómanna - Hönnunarskýrsla - Kennari: Nemendur: Anton Sigurðsson Lena Dögg

More information

VIÐSKIPTASVIÐ. Hvernig vinna íslenskir ferðaþjónustuaðilar markaðssetningu á netinu? Aðferðafræði Icelandair og Íslandsstofu

VIÐSKIPTASVIÐ. Hvernig vinna íslenskir ferðaþjónustuaðilar markaðssetningu á netinu? Aðferðafræði Icelandair og Íslandsstofu VIÐSKIPTASVIÐ Hvernig vinna íslenskir ferðaþjónustuaðilar markaðssetningu á netinu? Aðferðafræði Icelandair og Íslandsstofu Ritgerð til BS gráðu Nafn nemanda: Birgitta Guðmundsdóttir Bender Leiðbeinandi:

More information

Ásta Kristjana Sveinsdóttir. Fólkstegundir. Um veitingu félagslegra eiginleika

Ásta Kristjana Sveinsdóttir. Fólkstegundir. Um veitingu félagslegra eiginleika Hugur 21. ár, 2009 s. 52 62 Ásta Kristjana Sveinsdóttir Fólkstegundir Um veitingu félagslegra eiginleika Um langt skeið hefur verið umræða í fræðaheiminum, jafnt sem annars staðar, um hvort ýmis fyrirbæri

More information

Rannsókn á fylgjusýni (fylgjusýnataka) (CVS)

Rannsókn á fylgjusýni (fylgjusýnataka) (CVS) Rannsókn á fylgjusýni (fylgjusýnataka) (CVS) Unnið að hluta eftir bæklingum sem Guy s and St Thomas Hospital London; the Royal College of Obstetricians and Gynaecologists oglondon IDEAS Genetic Knowledge

More information

Gagnasafnsfræði. Páll Melsted. 18. nóv

Gagnasafnsfræði. Páll Melsted. 18. nóv Gagnasafnsfræði Páll Melsted 18. nóv JSON JavaScript Object Notation (JSON) Staðall til að skrifa niður hluti (e. object) á mannamáli Notað til að skiptast á gögnum og til að geyma hálfformuð gögn Upphaflega

More information

Hvert er hlutverk sölustjórans?

Hvert er hlutverk sölustjórans? Viðskiptafræðisvið Hvert er hlutverk sölustjórans? Ritgerð til BS gráðu Nafn nemenda: Jóna Dóra Ásgeirsdóttir Leiðbeinandi: A. Agnes Gunnarsdóttir Haustmisseri 2015 i Hvert er hlutverk sölustjórans? Lokaverkefni

More information

ÞEGAR GLEÐIN BREYTIST Í SORG

ÞEGAR GLEÐIN BREYTIST Í SORG GLEYM - MÉR - EI ÞEGAR GLEÐIN BREYTIST Í SORG Að missa á 12. 22. viku meðgöngu Þegar gleðin breytist í sorg Að missa á meðgöngu Útgefandi: LÍF styrktarfélag 1. útgáfa 2012 Efnisyfirlit Inngangur Tilfinningar

More information

HVAÐ SKAL SEGJA? Ásrún Matthíasdóttir 1

HVAÐ SKAL SEGJA? Ásrún Matthíasdóttir 1 HVAÐ SKAL SEGJA? "Would you tell me, please, which way I ought to go from here?" "That depends a good deal on where you want to get to", said the Cat. "I don't much care where," said Alice. "Then it doesn

More information

Skoðunartæki fyrir bráðvárkerfi Greiningarskýrsla

Skoðunartæki fyrir bráðvárkerfi Greiningarskýrsla Skoðunartæki fyrir bráðvárkerfi Greiningarskýrsla Höfundar Dr. Ebba Þóra Hvannberg, Eiríkur Egilsson Kerfisverkfræðistofa, Veðurstofa Íslands. Dagsetning ágúst 2001 Efnisyfirlit 1 INNGANGUR...3 2 NÚVERANDI

More information

Rannsóknamiðstöð ferðamála 2013

Rannsóknamiðstöð ferðamála 2013 Rannsóknamiðstöð ferðamála 2013 Útgefandi: Titill: Höfundur: Rannsóknamiðstöð ferðamála, Borgum v/ Norðurslóð, IS-600 Akureyri Sími: (+354) 460-8930 Fax: (+354) 460-8919 Rafpóstur: edward@unak.is Veffang:

More information

Siðferði og almannatengsl Hvar eru mörkin?

Siðferði og almannatengsl Hvar eru mörkin? FÉLAGSVÍSINDA- OG LAGASVIÐ Siðferði og almannatengsl Hvar eru mörkin? Ritgerð til BA gráðu Nafn nemanda: Ingunn Heiða Ingimarsdóttir Leiðbeinandi: Sævar Ari Finnbogason (Haustönn 2017) Staðfesting á lokaverkefni

More information

Viðskiptasvið. Markaðssetning nýrrar hönnunar Lykilþættir í markaðssetningu

Viðskiptasvið. Markaðssetning nýrrar hönnunar Lykilþættir í markaðssetningu Viðskiptasvið Markaðssetning nýrrar hönnunar Lykilþættir í markaðssetningu Ritgerð til BA gráðu Nafn nemanda: Úlfhildur E. Þ. Bjarnasen Leiðbeinandi: Ragnar Már Vilhjálmsson vor 2014 Markaðssetning nýrrar

More information

BS ritgerð. Lokaverkefni um Skype og Skype í farsíma

BS ritgerð. Lokaverkefni um Skype og Skype í farsíma BS ritgerð í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum Lokaverkefni um Skype og Skype í farsíma Sigurður Ísleifsson Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands Leiðbeinandi: Þórhallur Guðlaugsson Meðleiðbeinandi: Auður

More information

Könnunarverkefnið. Unnið var með Könnunaraðferðinni (The Project Approach). Stuðst var við bókina Young Investigators

Könnunarverkefnið. Unnið var með Könnunaraðferðinni (The Project Approach). Stuðst var við bókina Young Investigators Könnunarverkefnið Sjóræningjar Unnið var með Könnunaraðferðinni (The Project Approach). Stuðst var við bókina Young Investigators The Project approach in the early years. Eftir: Judy Harris Helm og Lilian

More information

Undirbúningur fyrir próf,- próftökutækni

Undirbúningur fyrir próf,- próftökutækni Undirbúningur fyrir próf,- próftökutækni Velgegni á prófum hefst löngu áður en að prófinu sjálfu kemur. Hún er fyrst og fremst falin í góðum námsvenjum og ástundun náms. Það er misjafnt hvaða skoðun fólk

More information

Windows snjallforrit/apps og samnýting á kóða fyrir IOS og Android með Xamarin

Windows snjallforrit/apps og samnýting á kóða fyrir IOS og Android með Xamarin Windows snjallforrit/apps og samnýting á kóða fyrir IOS og Android með Xamarin Björn Ingi Björnsson bjorn@spektra.is Um Spektra Að upplagi SharePoint ráðgjafafyrirtæki Stofnað árið 2013 í samstarfi við

More information

Samþykkjandi. Samþykktarferill í ORRA. Leiðbeiningar fyrir samþykkjanda. Útg. 2,0 - Apríl 2017

Samþykkjandi. Samþykktarferill í ORRA. Leiðbeiningar fyrir samþykkjanda. Útg. 2,0 - Apríl 2017 Samþykkjandi Samþykktarferill í ORRA Leiðbeiningar fyrir samþykkjanda Útg. 2,0 - Apríl 2017 Efnisyfirlit: 1. Leiðbeiningar FJS fyrir notendur Orra fjs.is... 2 2. Um samþykkt reikninga hlutverk samþykkjanda...

More information

Áhrif staðsetningar og útfærslu mislægra gatnamóta á umferðaröryggi

Áhrif staðsetningar og útfærslu mislægra gatnamóta á umferðaröryggi Áhrif staðsetningar og útfærslu mislægra Rannsóknarverkefni Vegagerðarinnar Janúar 206 www.vso.is Borgartún 20 585 9000 05 Reykjavík vso@vso.is 575 S:\205\575\v\Greinagerð\575_Greinargerð.docx Janúar 206

More information

Bundin við annað BDSM sem umlykjandi áhugamál Eyþór Kamban Þrastarson Lokaverkefni til BA-gráðu í Félagsfræði Félagsvísindasvið

Bundin við annað BDSM sem umlykjandi áhugamál Eyþór Kamban Þrastarson Lokaverkefni til BA-gráðu í Félagsfræði Félagsvísindasvið Bundin við annað BDSM sem umlykjandi áhugamál Eyþór Kamban Þrastarson Lokaverkefni til BA-gráðu í Félagsfræði Félagsvísindasvið Bundin við annað BDSM sem umlykjandi áhugamál Eyþór Kamban Þrastarson Lokaverkefni

More information

Ætla má að hátt á 10 þúsund manns hafi sótt þessa ráðstefnu.

Ætla má að hátt á 10 þúsund manns hafi sótt þessa ráðstefnu. Þjálfararáðstefna NSCAA (National Soccer Coaches Association of America) 13.-17.janúar 2010 Undirritaður sótti árlega þjálfararáðstefnu Bandaríska þjálfarasambandsins dagana 13.-17. Janúar 2010. Með í

More information

Ferhyrningurinn: Myndræn framsetning á ársreikningi

Ferhyrningurinn: Myndræn framsetning á ársreikningi www.ibr.hi.is Ferhyrningurinn: Myndræn framsetning á ársreikningi Einar Guðbjartsson Ritstjórar: Kári Kristinsson Magnús Pálsson Þórður Óskarsson Vorráðstefna Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands: Erindi

More information

Algengi og nýgengi (Fjöldi sjúklinga)

Algengi og nýgengi (Fjöldi sjúklinga) Lewy sjúkdómur Friederich (Fritz) Heinrich Lewy var gyðingur, fæddur í Berlín árið 1885 (1). Hann lauk læknanámi 1910 í heimborg sinni og sérhæfði sig síðan í taugalæknisfræði, taugameinafræði og einnig

More information

Mannauður - Discoverer Viewer 5 fyrir ríki 1. útgáfa. 1. Inngangur Innihald bókarinnar... 2

Mannauður - Discoverer Viewer 5 fyrir ríki 1. útgáfa. 1. Inngangur Innihald bókarinnar... 2 Efnisyfirlit 1. Inngangur... 2 1.1. Innihald bókarinnar... 2 2. Um Discoverer... 3 2.1. Mismunandi aðgangur að kerfinu... 3 2.2. Hugtök sem tengjast notkun Discoverer... 4 2.3. Um skoðunarútgáfu af Discoverer...

More information

Fréttabréf Tourette-samtakanna - janúar 2004 ==================================================

Fréttabréf Tourette-samtakanna - janúar 2004 ================================================== Fréttabréf Tourette-samtakanna - janúar 2004 ================================================== Efni þessa fréttabréfs Frá stjórninni Ný þýðingarverkefni á döfinni Evrópufundir Tourette samtaka Um Mozart

More information

Forritunarkeppni Framhaldsskólanna 2013

Forritunarkeppni Framhaldsskólanna 2013 2013 Spock deild - eftir hádegi Háskólinn í Reykjavík 16. mars 2013 Verkefni 11 Sort Margar forritunarkeppnir hafa dæmi þar sem keppendur eiga að raða lista af heiltölum. Þetta dæmi er aðeins öðruvísi,

More information

Maintx viðhaldsstjórnunarkerfi NOTENDAHANDBÓK

Maintx viðhaldsstjórnunarkerfi NOTENDAHANDBÓK Maintx viðhaldsstjórnunarkerfi NOTENDAHANDBÓK 2016 [Type here] [Type here] [Type here] Efnisyfirlit KYNNING... 4 UM MAINTX... 4 KOSTIR VIÐ NOTKUN MAINTX EIGNA- OG VIÐHALDSSTJÓRN.... 5 AÐ KOMA SÉR AF STAÐ....

More information