Samruni Icepharma hf. og Lyfis ehf.

Similar documents
Samruni Hampiðjunnar hf. og VOOT BEITU ehf.

Kaup Sands ehf. á ISS Íslandi ehf.

Kaup Alvogen Iceland ehf. á samheitalyfjum Teva á Íslandi

Samruni Johan Rönning hf. og Efnissölu G.E. Jóhannssonar ehf.

Kaup Límtrés Vírnets ehf. á öllum hlutum í Bindir og Stál ehf.

Samruni Securitas hf. og Geymslna ehf.

Samruni Samhentra Kassagerðar hf. og Frjó Umbúðasölunnar ehf.

Samruni 365 miðla ehf. og Konunglega kvikmyndafélagsins ehf.

Samruni KS sölu ehf., Sláturhússins Hellu hf. og Skanka ehf.

Kaup Landsbankans hf. á eignarhlut í Verdis hf. (áður Arion verðbréfavarsla).

Samruni WOW Air ehf. og Iceland Express ehf. Efnisyfirlit

Kaup Pressunnar ehf. á Birtingi útgáfufélagi ehf.

Samruni Gæðabaksturs ehf. og Brauðgerðar Kr. Jónssonar og Co ehf.

Kaup Almenna leigufélagsins ehf. á Leigufélaginu Kletti ehf.

Fimmtudagurinn 27. september fundur samkeppnisráðs. Kvörtun Mallands ehf. vegna misnotkunar Hörpu hf. á markaðsráðandi stöðu. I.

Fimmtudagur, 1. apríl fundur samkeppnisráðs

Samruni GMR endurvinnslunnar ehf. og Hringrásar hf.

Samruni Nova hf. og Símafélagsins ehf.

Samruni Arion banka hf., Varðar trygginga hf. og Varðar líftrygginga hf.

Kaup Lyfja og heilsu hf. á Opnu ehf. Efnisyfirlit. bls. I. SAMANDREGIN NIÐURSTAÐA... 3 II. SAMRUNATILKYNNINGIN OG MÁLSMEÐFERÐ... 5

Hugbúnaður kemur ekki í stað fólks! Camilla Ósk Hákonardóttir

Samruni Fjarskipta hf. og 365 miðla hf.

Sameiginleg yfirráð Arion banka og Búvalla yfir Högum hf.

Sykursýkisdagbók ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI JANÚAR 2014 (BYGGT Á DIABETES HEALTH RECORD FRÁ THE DIABETES COALTILATION OF CALIFORNIA.)

Meint brot Símans hf. með tilboði í 3G netlykil og áskrift

Yfirtaka Stjörnugríss hf. á eignum Rekstrarfélagsins Brautar ehf. og LS2 ehf.

Málsýni. Aðferð til að meta málþroska barna. Jóhanna Einarsdóttir, Ester Sighvatsdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir

Beiðni Forlagsins ehf. um endurupptöku ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008 um samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf.

Miðvikudagur, 3. desember Ákvörðun nr. 35/2014

Tryggð viðskiptavina við banka í kjölfar bankahrunsins. Þórhallur Guðlaugsson dósent Friðrik Eysteinsson aðjunkt

Þriðjudagurinn 9. maí fundur samkeppnisráðs. Kvörtun Iðnvéla ehf. yfir viðskiptaháttum Merkúrs ehf. I. Erindið

Ósk um undanþágu frá ákvæði samkeppnislaga um bann við samstarfi keppinauta

Ósk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um undanþágu vegna fagráðs um styrkflokkað timbur

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 70/2007. Misnotkun Hf. Eimskipafélags Íslands á markaðsráðandi stöðu sinni

Kennaraglósur Excel Flóknari aðgerðir: Solver

Skýrsla Samkeppniseftirlitsins nr. 1/2008. Viðskiptasamningar birgja og annað samstarf fyrirtækja á matvörumarkaði

Fimmtudagur, 13. desember, Ákvörðun nr. 31/2012

Brot Símans hf. með tilboði í 3G netlykil og áskrift

Úrskurður Einkaleyfastofunnar. í andmælamáli. nr. 2/2012. Rolex SA, Sviss. gegn. Prolex ehf, Íslandi

Brot Forlagsins ehf. á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008 Samruni JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf.

Undanþágubeiðni vegna starfsemi Reiknistofu bankanna hf. og samruni við Teris

Viðauki D. Svör PFS við athugasemdum vegna samráðs um lokadrög að ákvörðun um markað fyrir aðgang og upphaf símtala í almenn farsímanet (markaður 15)

Auðkenni Super Jeep Drive. I. Erindið

Fimmtudagur, 17. október Ákvörðun nr. 24/2013

Málsástæður og lagarök Greinargerð andmælanda

Föstudagurinn 26. febrúar 1999 kl. 11: fundur samkeppnisráðs. Fyrirhuguð kaup Coca-Cola Nordic Beverages A/S á öllu hlutafé í Vífilfelli ehf.

Aðgerðir til að efla samkeppni í almennri viðskiptabankaþjónustu við einstaklinga og lítil fyrirtæki

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 40 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR

Yfirtaka Seðlabanka Íslands á Fjölgreiðslumiðlun hf. (nú Greiðsluveitunni hf.)

Gagnasafnsfræði. Páll Melsted 16. sept

Miðvikudagur, 23. febrúar fundur samkeppnisráðs

Samtök iðnaðarins. - Viðhorf félagsmanna til Evrópumála

- Á grundvelli sáttar við Arion banka -

Fjárhagslegur aðskilnaður á grundvelli 14. gr. samkeppnislaga

Brot Greiðslumiðlunar hf., Kreditkorts hf. og Fjölgreiðslumiðlunar hf. á bannákvæðum samkeppnislaga

Föstudagurinn, 19. september fundur samkeppnisráðs. Kvörtun Hasso Íslands ehf. yfir skráningu lénsins hasso.com

MATVÖRUMARKAÐURINN Leiðbeinandi reglur um viðskipti birgja og matvöruverslana

Umsögn um frumvarp til laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði

22/03/2018 RANNSÓKN Á LYFJAMARKAÐI VERÐLAGNING HEILDSÖLULYFJA Á ÍSLANDI

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 8 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR

Undanþága frá banni við samráði vegna samstarfs tæknimanna sem starfa að net- og upplýsingaöryggismálum fjármálafyrirtækja

Rafræn mæling Capacent ehf. á notkun ljósvakamiðla

Ákvörðun nr. 2/2018. Fækkun dreifingardaga á pósti

3. Sameiginlega EES-þingmannanefndin. Orðsending frá Eftirlitsstofnun EFTA Tilkynning Leiðbeiningar um beitingu 3. mgr. 53. gr. EES-samningsins...

Miðvikudagurinn 23. maí fundur samkeppnisráðs

Reglur um bestu framkvæmd viðskipta Samþykkt í febrúar 2017/ Áætluð endurskoðun í febrúar 2018 / Ábyrgðaraðili: Regluvarsla

Nefndasvið Alþingis b.t. umhverfis- og samgöngunefndar Austurstræti Reykjavík. Reykjavík, 11. febrúar 2014

Umsögn Samkeppniseftirlitsins við drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu

Leiðbeinandi tilmæli

Viðauki A. - Markaðsgreining - Greining á heildsölumarkaði fyrir lúkningu símtala í einstökum föstum almennum talsímanetum (Markaður 1/2016)

Kvörtun Frostfisks ehf. yfir viðskiptaháttum fiskmarkaða

I. Erindi Atlassíma ehf.

SÖLUSYNJUN SEM MISNOTKUN Á MARKAÐSRÁÐANDI STÖÐU

Ferhyrningurinn: Myndræn framsetning á ársreikningi

Vörumerki. Auðkenni markaðarins. Vörumerkjaréttur í stuttu máli Skráning vörumerkja Me höndlun umsókna Alþjó leg skráning vörumerkja

Reykjavík, 7. desember Úrskurður nr. 22/2017. Í dag var hjá embætti Tollstjóra kveðinn upp svofelldur Ú R S K U R Ð U R

VIÐSKIPTASVIÐ. Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM? Út frá reynslu stærstu fyrirtækja Íslands

Stefnumótun í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja

Málavextir Þann 4. ágúst 2015 barst Einkaleyfastofunni tilkynning frá Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO)

Misnotkun Sorpu bs. á markaðsráðandi stöðu sinni

Greining samkeppnisumhverfis

Samkeppniseftirlitið B.t. Páls Gunnar Pálssonar/Ólafs Freys Frímannssonar Borgartúni Reykjavík. Reykjavík, 16. maí 2018

Erindi WOW Air ehf. vegna úthlutunar Isavia ohf. á afgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli. Efnisyfirlit

Áhrifaþættir á alþjóðlegan vöxt Össurar hf.

Samkeppnismat stjórnvalda

Þriðjudagurinn 3. apríl fundur samkeppnisráðs

Hvernig getum við uppfyllt þarfir kaupenda á netinu?

Áherslur Íslandsstofu á Asíu og aðra. vaxandi markaði. Kynning fyrir Íslensk Kínverska viðskiptaráðið 13. maí Þorleifur Þór Jónsson

Samkeppnismál. 4. Kafli: Það helsta á árinu Horfur á árinu 2012

ISO 9001:2015 Áhrif á vottuð fyrirtæki

MARKAÐSÁÆTLANIR Markviss sókn til árangurs. Efnisyfirlit

Áhrif aldurs á skammtímaminni

Mánudagurinn 12. janúar 1998 kl. 15: fundur samkeppnisráðs. Viðskiptahættir í greiðslukortastarfsemi. I. Málavextir og málsmeðferð

Áhrif staðsetningar og útfærslu mislægra gatnamóta á umferðaröryggi

Samband tryggðar og ánægju viðskiptavina með þjónustu á fyrirtækjamarkaði

Tengdir aðilar á markaði

Efnisyfirlit INNGANGUR KYNNING Á ÞJÓNUSTUHUGTAKINU... 6

MS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti. Notkun Facebook til markaðsfærslu á Íslandi

Yfirtaka síðari hluti. Aðalsteinn E. Jónasson hæstaréttarlögmaður á LEX lögmannsstofu

Fairtrade viðskiptastefnan

Transcription:

Mánudagur, 22. janúar 2018 Ákvörðun nr. 4/2018 Samruni Icepharma hf. og Lyfis ehf. I. Málavextir og málsmeðferð Með bréfi dags. 12. október sl. var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup Icepharma hf. (hér eftir Icepharma) á meirihluta hlutafjár í Lyfis ehf. ásamt systurfélagi þess, Medical ehf. Eftir viðskiptin verða framangreind félög þannig í meirihlutaeigu Icepharma. Meðfylgjandi bréfinu fylgdi svonefnd styttri samrunaskrá með upplýsingum um framangreindan samruna, sbr. 6. mgr. 17. gr. a. samkeppnislaga nr. 44/2005 og reglur Samkeppniseftirlitsins nr. 684/2008 um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum og viðauka II við þær (styttri tilkynning). Með bréfi, dags. 18. október 2017, var samrunaaðilum tilkynnt um að samrunaskráin teldist fullnægjandi og byrjuðu frestir Samkeppniseftirlitsins til að rannsaka samrunann skv. 17. gr. d. samkeppnislaga því að líða 13. október 2017. Samruninn hefur sætt rannsókn eftirlitsins og við upphaf rannsóknarinnar leitaði eftirlitið bæði til keppinauta samrunaaðila, viðskiptavina þeirra sem og opinberra aðila. 1 Þessum aðilum var sent bréf þann 17. október sl. ásamt afriti af samrunaskrá án trúnaðarupplýsinga og þeim gefið færi á því að koma fram með sjónarmið um áhrif samrunans á samkeppni. Nokkur hluti þessara aðila kaus að leggja fram sjónarmið vegna hans og bárust þau ýmist með tölvubréfum eða voru lögð fram á fundum með eftirlitinu. Umsagnir vegna samrunans bárust síðar í mánuðinum. Í kjölfar þess að umsagna var aflað sá eftirlitið tilefni til þess að óska umsagna hjá fleiri aðilum. Tilgangur þeirra umsagna var að varpa ljósi á umsvif samrunaaðila í tilteknum lyfjaflokkum sem eftir atvikum geta myndað sérstaka samkeppnismarkaði. Bárust umsagnir þann 8. desember sl. og gáfu þau gögn tilefni til nánari athugunar. Fundaði Samkeppniseftirlitið því með samrunaaðilum þann 19. desember og í kjölfar fundarins bárust skriflega ítarlegri sjónarmið samrunaaðila. Verður nánar vikið að þessum upplýsingum og sjónarmiðum sem aflað var síðar í þessari ákvörðun eftir því sem við á. 1 Allir helstu viðskiptavinir og keppinautar samrunaaðila fengu færi á því að koma fram með sjónarmið vegna málsins, þeir opinberu aðilar sem á þessu stigi málsins var gefið færi á því að koma fram með umsögn um málið voru: Landspítali háskólasjúkrahús, Lyfjastofnun, Velferðarráðuneytið, Sjúkratryggingar Íslands og Sjúkrahúsið á Akureyri.

II. Samruninn Samkvæmt 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 telst samruni hafa átt sér stað þegar breyting verður á yfirráðum til frambúðar. Samruni getur þannig m.a. falist í því að fyrirtæki taki annað fyrirtæki yfir eða það nái yfirráðum í heild eða að hluta yfir öðru fyrirtæki, t.d. með því að kaupa hluta af eignum þess eða þær allar, sbr. 1. mgr. 17. gr. laganna. Hér á eftir verður samrunanum lýst nánar. Fram kemur í samrunaskrá að samruninn feli í sér kaup Icepharma á meirihluta hlutafjár í Lyfis ehf. og systurfélaginu Medical ehf. (hér eftir verður sameiginlega vísað til þessara félaga sem Lyfis). Að mati Samkeppniseftirlitsins fela umrædd kaup í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga enda eru veltuskilyrði ákvæðisins uppfyllt og við viðskiptin verður breyting á yfirráðum Lyfis. Icepharma velti sl. rekstrarár um 9 milljörðum króna. Fyrirtækið skiptist í þrjú svið en það eru: lyfjasvið, heilbrigðissvið og heilsu- og íþróttasvið. Sá samruni sem hér er til umfjöllunar snertir aðeins lyfjasvið fyrirtækisins en um helming af veltu Icepharma má rekja til sviðsins. Í samrunaskrá segir að starfsemi þess felist í sölu og markaðssetningu lyfja, skráningu þeirra og viðhaldi markaðsleyfa, auk alhliða þjónustu við dýralækna. Í skránni kemur einnig fram að á sviðinu starfi 27 manns sem skipt sé í sex mismunandi deildir. Birgjar sviðsins séu um 100 og velta sviðsins skiptist þannig að um [...] 2 % teknanna megi rekja til frumlyfja en einungis um [...]% til samheitalyfja. Fram kemur í samrunaskrá að spítalar kaupi um helming af vörum sviðsins en apótek um [...]%. 3 Á íslenskum lyfjamarkaði starfar Icepharma sem fulltrúi lyfjaframleiðanda og sér fyrirtækið um að sækja um markaðsleyfi og annast dagleg samskipti við Lyfjastofnun vegna þeirra lyfja sem eru á markaði. Fyrirtækið úthýsir svo birgðahaldi, dreifingu og annarri vöruþjónustu til Parlogis ehf. (hér eftir Parlogis), sem er systurfélag Icepharma. Fjallað var um samruna Icepharma og Parlogis í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 29/2010, Kaup Lyfjaþjónustunnar ehf. á Parlogis ehf. Þar segir að Parlogis sé vörustjórnunarfyrirtæki sem hafi sérhæft sig í að þjónusta fyrirtæki á heilbrigðismarkaði. Parlogis bjóði viðskiptavinum sínum upp á þjónustu við birgðastýringu, innkaup, innflutning, lagerhald, móttöku pantana, tiltekt vara og dreifingu þeirra, reikningagerð og innheimtu. Misjafnt sé hversu víðtæka þjónustu viðskiptavinir fyrirtækisins kaupi. Fyrirtækið hafi sérhæft sig í vörustjórnun fyrir heilbrigðisstofnanir, lyfjafyrirtæki og sérverslanir með heilsutengdar vörur. Birgjar Icepharma eru eins og áður segir ríflega eitt hundrað og flytur fyrirtækið inn samanlagt um 1200 vörunúmer. Helstu birgjarnir eru á meðal stærstu lyfjaframleiðanda heims s.s. Pfizer, Roche, Bayer Pharma, Biogen, Eli Lilly, CSL, Mylan og Merck. Í þessum hópi er einungis Mylan samheitalyfjaframleiðandi en aðrir birgjar eru frumlyfjaframleiðendur. Í samrunaskrá kemur fram að Lyfis sé stofnað árið 2006 og fyrirtækið sé markaðsleyfishafi og umboðsaðili fyrir lyf - aðallega samheitalyf. Segir að viðskiptalíkanið byggi á 2 Upplýsingar í hornklofa teknar út í birtri ákvörðun vegna trúnaðar. 3 Önnur viðskipti sviðsins má rekja til sérfræðinga, stofnana og fyrirtækja. 2

dreifingarsamningum fyrir erlenda lyfjaframleiðendur og að stefna Lyfis sé að vera ávallt með lægsta verð lyfja á markaðnum. Fyrstu lyfin hafi Lyfis sett á markað árið 2010 og nú séu yfir 100 samheitalyf markaðssett af félaginu. Þá segir að fyrirtækið hafi verið umboðsaðili fyrir lyfjaframleiðandann Teva/Ratiopharm en því viðskiptasambandi ljúki nk. áramót. 4 Aðrir helstu birgjar félagsins séu: Krka, Stada, Medice Arzeneimittel Putte, Evolan, Eql Pharma, Niconovum. Ennfremur segir að sex manns starfi hjá fyrirtækinu og skrifstofur þess séu að Grensásvegi 22 og að Parlogis sjái um birgðahald og vörustjórnun fyrir hönd fyrirtækisins. Um Lyfis segir í samrunaskrá að velta fyrirtækisins árið 2016 hafi numið [...] m.kr. og að hana megi að langmestu rekja til sölu á sk. samheitalyfjum til apóteka. Þar kemur fram að fyrirtækið selji 169 vörunúmer frá 10 markaðsleyfishöfum en einnig kemur fram að rekja megi um helming af veltu félagsins til vara frá lyfjaframleiðandanum Teva/Ratiopharm. Líkt og áður hafi komið fram verði vörur frá þessum framleiðanda frá nk. áramótum seldar í gegnum annan íslenskan umboðsaðila og því megi vænta þess að velta fyrirtækisins dragist verulega saman eftir það. Í þessu máli liggur fyrir að helsta skörunin í starfsemi samrunaaðila er við innflutning og heildsölu á samheitalyfjum. Við rannsókn málsins hafa þó komið fram sjónarmið þess efnis að rétt sé að greina markaðinn á annan hátt en einungis með því að horfa til skörunar á sviði samheitalyfja þar sem að í vissum tilfellum sé samkeppni á milli frumlyfja og samheitalyfja. Það byggir meðal annars á því að ávallt megi rekja tilvist samheitalyfs til frumlyfs sem hafi læknisfræðilega sömu virkni. Undir vissum kringumstæðum geti því verið bein samkeppni á milli frum- og samheitalyfs enda hafi þau hina sömu klínísku virkni. Verður nánar vikið að þessu sjónarmiði síðar í ákvörðuninni. 1. Markaðir málsins og staða fyrirtækja á þeim Við mat á samkeppnislegum áhrifum samruna samkvæmt 17. gr. c. samkeppnislaga verður að byrja á því að skilgreina þann markað sem við á. Samkvæmt 4. gr. laganna er markaður skilgreindur sem sölusvæði vöru og staðgönguvöru eða þjónustu og staðgönguþjónustu. Staðganga er þegar vara eða þjónusta getur að fullu eða verulegu leyti komið í stað annarrar vöru eða þjónustu. Með hliðsjón af hagfræðilegum rökum þarf að líta á viðkomandi markað út frá a.m.k. tveimur sjónarmiðum; annars vegar vöru- eða þjónustumarkaði og hins vegar landfræðilegum markaði. Hafa ber þó í huga að markaðsskilgreiningar í samkeppnisrétti geta ekki orðið nákvæmar og eru aðeins notaðar til viðmiðunar, sbr. úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 8/2008 Fiskimarkaður Íslands hf. gegn Samkeppniseftirlitinu. Tilgangur þess að skilgreina viðkomandi markað í samrunamálum er að finna það svið viðskipta sem samruninn hefur áhrif á. 5 Með markaðsskilgreiningunni er leitast við að 4 Frekari umfjöllun um þetta má finna í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 32/2017, Kaup Alvogen Iceland ehf. á samheitalyfjum Teva á Íslandi. Samrunaskráin barst árið 2017 þannig að í henni er átt vísað til nýliðinna áramóta. 5 Þessi tilgangur með markaðsskilgreiningu er víðast hvar lagður til grundvallar í samkeppnisrétti. Í ECS/AKZO málinu, OJ 1985 L374/1 lýsti framkvæmdastjórn ESB því t.a.m. yfir að: The object of market delineation is to define the area of commerce in which the conditions of competition and the market power of the dominant firm is to be assessed. Sjá hér einnig Commission Notice on the definition of relevant market for the purposes of Community competition law [1998] 4 C.M.L.R. 177: Market definition is a tool to identify and define the boundaries of competition between firms.... The objective of defining a market in both its product and geographic dimensions is to identify those actual competitors of the undertakings involved that are capable of constraining 3

afmarka hvar samkeppni milli fyrirtækja á sér stað í þeim tilgangi að greina á kerfisbundinn hátt þær skorður sem samkeppni á markaði leggur á hegðun þeirra fyrirtækja sem starfa á þeim markaði sem samruninn hefur áhrif á. Með því að afmarka markaðinn bæði frá sjónarmiði þeirrar vöru eða þjónustu sem seld er á markaðnum og frá landfræðilegu sjónarmiði er reynt að greina þá keppinauta samrunaaðila á markaði sem í raun geta sett hegðun samrunaaðilanna skorður og komið í veg fyrir að þeir hegði sér óháð virkum þrýstingi á markaði sem samkeppni af hálfu keppinauta getur veitt. 6 Í þessu máli er ljóst að báðir samrunaaðilar starfa við innflutning, markaðssetningu og sölu á lyfjum. Markaður fyrir slíka starfsemi hefur verið greindur niður með ýmsum hætti, en í öllu falli er þó ljóst að starfsemi Icepharma er mun umfangsmeiri og fjölbreyttari en starfsemi Lyfis. Hefur starfsemi Lyfis að uppistöðu til takmarkast við sölu á sk. samheitalyfjum til apóteka en rekja má nær alla veltu fyrirtækisins til þess háttar viðskipta. Þegar litið er til starfsemi Icepharma á þessu sviði má sjá að fyrirtækið hefur selt lyf fyrir um [...] til apóteka á ársgrundvelli. Þar af er mikill meirihluti veltu fyrirtækisins vegna frumlyfja. Í samrunaskrá kemur fram að lyfjum megi skipta í tvo flokka, annars vegar frumlyf og hins vegar samheitalyf. Þar segir að frumlyf séu nýr meðferðamöguleiki sem séu með einkaleyfi í takmarkaðan tíma. Sala þeirra á Íslandi sé háð samþykki á greiðsluþátttöku og verði frá Lyfjagreiðslunefnd ríkisins. Samheitalyf komi inn þegar einkaleyfi frumlyfja falli niður og séu þau eftirlíkingar af frumlyfjum. Samheitalyf séu sambærileg að gæðum og hafi sömu verkun þar sem þau innihaldi sama virka efnið. Í samrunaskránni kemur ennfremur fram að samheitalyf séu ódýrari en frumlyf og því hafi íslensk yfirvöld um langt skeið haft þá stefnu að auka hlutfall samheitalyfja á lyfjamarkaði. Í skránni kemur jafnframt fram að Ísland sé aðili að samkomulagi Evrópusambandsins um að leyfa smærri ríkjum að fara í einfaldara skráningarferli (e. Zero day procedure) á samheitalyfjum sem hafa þegar verið skráð í einu af þeim löndum sem standa að þessu samkomulagi. Skilyrðið sé að viðkomandi lyf sé frá sama framleiðanda og í alla staði nákvæmlega hið sama. Þetta sé gert til að stuðla að aðgengi að fleiri samheitalyfjum á litlum mörkuðum. Yfirvöld séu því virkir þátttakendur í aðgengi sjúklinga að ódýrum meðferðamöguleikum bæði hvað varðar framboð og eftirspurn. Stjórnvöld reyni því að stýra neyslu lyfja í átt að samheitalyfjum til að halda niðri kostnaði sem geri sölu samheitalyfja að virkum markaði þar sem framleiðendur og heildsalar keppa sín á milli. Hvað verðlagningu lyfja varðar kemur fram í samrunaskrá að lyf séu annað hvort lyfseðilsskyld eða sk. lausasölulyf sem eru lyf sem apótek megi selja neytendum án lyfseðils frá lækni. Verð lyfseðilsskyldra lyfja ákvarðist af Lyfjagreiðslunefnd. 7 Þau séu endurskoðuð mánaðarlega og megi aldrei vera hærri en meðaltal á verðum sama lyfs í Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð hvað varðar frumlyf en varðandi samheitalyf þá reiknast meðaltalið af meðaltali samheitalyfja í hverju landi fyrir sig. Verðlagning á lausasölulyfjum sé frjáls. those undertakings behaviour and of preventing them from behaving independently of effective competitive pressure. 6 Sjá m.a. tilkynningu Eftirlitsstofnunar EFTA um skilgreiningu á hugtakinu viðkomandi markaður (98/EES/28/01) mgr. 2. 7 Lyfjagreiðslunefnd kom fram með umsögn vegna samrunans. 4

Klínísk virkni lyfja er flokkuð eftir alþjóðlegri flokkun sem kallast ATC-flokkun en þessi flokkun er notuð til þess að para saman hin virku efni lyfja sem hafa hina sömu læknisfræðilegu-, lyfjafræðilegu- eða efnafræðilegu eiginleika. 8 Lyf sem hafa sömu ATC flokkun hafa því staðgöngu frá sjónarhóli sjúklinga. Lyf innan sama ATC flokks geta ýmist verið frumlyf eða samheitalyf. Afstaða Samkeppniseftirlitsins til markaðsskilgreiningar Starfsemi samrunaaðila er eins og áður greinir heildsala á lyfjum og getur sá markaður eftir atvikum verið greindur niður í ýmis konar undirmarkaði. Að gögnum málsins virtum telur Samkeppniseftirlitið að samruni þessi hafi fyrst og fremst áhrif á markað fyrir heildsölu lyfja og þá einkum samheitalyfja. Þá er það jafnframt mat eftirlitsins að sala lyfja geti greinst í nánari undirmarkaði eftir klínískri virkni lyfja og er ATC flokkunin sú flokkun sem helst er byggjandi á. Samkeppniseftirlitið taldi því að nauðsynlegt að rannsaka áhrif samrunans á sérhvern ATC flokk lyfja. Sterk rök eru fyrir því að einn undirmarkaður lyfjamarkaðarins sé markaður fyrir lyf með sama virka innihaldsefnið sem tilheyra hinum sama ATC-flokki (e. Molecule level). Mögulegir undirmarkaðir eru því fræðilega allt að því jafnmargir og fjöldi virkra innihaldsefna eða n.t.t. fjöldi ATC-flokka. Að lokum telur eftirlitið rétt að skilgreina markaðinn fyrir heildsölu lyfja jafnframt niður í annars vegar markað fyrir samheitalyf og hins vegar markað fyrir frumlyf. Byggir það m.a. á því að samheitalyf eru almennt mun ódýrari en frumlyfin. Er framangreind skilgreining í samræmi við framkvæmd í EES/ESB-samkeppnisrétti. 9 Hvað landfræðilega afmörkun á framangreindum mörkuðum varðar er það afstaða Samkeppniseftirlitsins að þeir taki til landsins alls, enda er í þessu máli í öllum tilfellum um að ræða heildsölumarkaði. Nánari umfjöllun um lyfjamarkaðinn og samheitalyfjamarkaðinn má finna í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 32/2017, Kaup Alvogen Iceland ehf. á samheitalyfjum Teva á Íslandi. Staða hins sameinaða fyrirtækis á lyfjamarkaði. Þegar litið er til neyslu lyfja á Íslandi í heild sinni má að uppistöðu rekja hana annars vegar til sjúkrahúsa og annarra sjúkrastofnana og hins vegar til lyfja sem keypt eru í apótekum. Fram hefur komið að starfsemi hins keypta takmarkast við sölu á lyfjum til apóteka. Markaðurinn fyrir smásölu lyfja hefur verið skilgreindur sem sérstakur markaður sbr. ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2010 Misnotkun Lyfja og heilsu hf. á markaðsráðandi stöðu sinni. Samrunaaðilar starfa eins og áður segir á markaði fyrir heildsölu lyfja á Íslandi sem greinast svo mögulega niður í áðurnefnda undirmarkaði. Þegar litið er til heildarstærðar smásölumarkaðar lyfja hér á landi má sjá að heildarvelta allra lyfjabúða á Íslandi árið 2016 nam um 16 milljörðum kr. Gögn í samrunaskrá benda til þess að sala samrunaaðila til lyfjabúða hafi numið röskum 3 milljörðum kr. þetta sama ár. Þar af má rekja um [...] veltu til Icepharma og um [...] veltu til Lyfis. Í þessu samhengi er þó rétt að gera grein fyrir tvennu sem taka þarf sérstakt tillit til. Í fyrsta lagi hefur Lyfis nú misst sinn mikilvægasta birgi, TEVA/Ratiopharm en dreifing á lyfjum fyrirtækisins fór til 8 Skammstöfunin ATC stendur fyrir Anotomical Therapeutic Chemical og er flokkunarkerfi sem stjórnað er af alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO). 9 Sjá t.d. ákvarðanir framkvæmdastjórnar ESB í málum nr. M.7559 Pfizer/Hospira, M.7379 Mylan/Abbott EPD- DM og M.6613 Watson/Actavis. 5

Alvogen nú um áramótin. Með þessu missir Lyfis um helming af veltu sinni. 10 Í annan stað er velta samrunaaðila miðuð við heildsöluverð en heildarveltan sem vikið er að hér að ofan er smásöluverð. Því er hlutdeild samrunaaðila í heildarinnkaupum apóteka hærra hlutfall en reikna má út frá ofangreindum tölum. Í öllu falli er hér ljóst að hlutdeild samrunaaðila á heildarmarkaði fyrir heildsölu lyfja á Íslandi er um 20%. Þá er í samrunaskrá jafnframt að finna umfjöllun um hlutdeild samrunaaðila í viðskiptum með samheitalyf á Íslandi. Þar eru tekin saman umsvif helstu aðila sem starfa á markaðnum og er hlutdeild Lyfis sett þar fram án lyfja frá TEVA/Ratiopharm og [...]. 11 Þar kemur fram að hlutdeild Lyfis á samheitalyfjamarkaði sé um 8% og velta þeirra um [...]. Um Icepharma segir að velta þeirra sé [...] á ársgrundvelli og hlutdeildin 7%. Stærstu aðilarnir á markaðnum séu hins vegar Actavis og Alvogen sem hafi 40% og 32% hlutdeild á honum að mati samrunaaðila. Í samrunaskrá kemur fram að heildarvelta á markaðnum fyrir árið 2016 hafi verið 3,4 ma. kr. 12 Hlutdeild samrunaaðila á þessum undirmarkaði er því verulega undir þeim mörkum sem alla jafna eru talin skapa forsendur til íhlutunar samkeppnisyfirvalda. 13 Samruninn hefur ekki í för með sér samþjöppun á markaði fyrir heildsölu frumlyfja enda hefur Lyfis ekki stundað slíka starfsemi. Samkeppniseftirlitið hefur jafnframt undir höndum gögn sem sýna samþjöppun í tilteknum ATC flokkum vegna samrunans. Þegar litið er til þeirra gagna má sjá að samrunaaðilar koma til með að hafa allháa markaðshlutdeild í fimm tilgreindum flokkum. Lyf undir þessum flokkum koma í öllum tilfellum frá fleiri en einum framleiðanda og innan mengisins eru bæði frumheita- og samheitalyf. Samanlögð velta í öllum þeim flokkum sem um ræðir er um 150 m.kr. á ársgrundvelli og velta veltuhæsta flokksins er um 50 m.kr. Verður nánar vikið að samkeppnislegri þýðingu þessa hér á eftir. III. Niðurstaða Í 17. gr. c. samkeppnislaga kemur fram að telji Samkeppniseftirlitið að samruni hindri virka samkeppni vegna myndunar markaðsráðandi stöðu eins eða fleiri fyrirtækja eða slík staða styrkist, eða verði til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, geti stofnunin ógilt eða sett slíkum samruna skilyrði. Af gögnum málsins virtum þá er það mat Samkeppniseftirlitsins að ekki séu nægjanlegar forsendur til íhlutunar í máli þessu. Þannig er samþjöppun á heildsölumarkaði, hvort sem 10 Sjá nánar í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 32/2017 Kaup Alvogen Iceland ehf. á samheitalyfjum Teva á Íslandi. 11 [...] 12 Þessar tölur eru úr samrunaskrá, þar eru jafnframt taldir upp minni aðilar sem starfa á markaðnum og hver þeirra er með 7% markaðshlutdeild eða lægri en þetta eru: Vistor, Artasan, William Halls, Mylan, Acare, Lyfjaver og Lundbeck export. 13 Sjá nánar í leiðbeiningum framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins: Guidelines on the assessment of nonhorizontal mergers under the Council Regulation on the control of concentrations between undertakings. 6

um er að ræða frumlyf eða samheitalyf, undir þeim mörkum sem alla jafna eru talin fela í sér tilefni til íhlutunar. Þá eru að mati Samkeppniseftirlitsins heldur ekki forsendur til íhlutunar í samrunann vegna samþjöppunar í tilteknum ATC flokkum lyfja. Undir vissum kringumstæðum getur verið tilefni til íhlutunar samkeppnisyfirvalda þegar samþjöppun á sér stað í tilteknum ATC flokkum. Það er þó rannsóknarefni í hverju máli fyrir sig. Á meðal atriða sem hafa þýðingu við niðurstöðu máls þessa er að velta í öllum þeim ATC flokkum sem um ræðir óveruleg og má rekja hana til lyfja frá mörgum lyfjaframleiðendum. Þá hafa hafa ekki komið fram rökstudd sjónarmið frá keppinautum eða opinberum aðilum um að samruni þessi muni hafa neikvæð áhrif á samkeppni. Þá getur staða framleiðenda lyfja haft þýðingu en þeir eiga að jafnaði markaðsleyfi fyrir lyf. Dæmi er um að lyfjaframleiðendur sem hafa sama umboðsmann hafi leitað réttar síns gagnvart hvoru öðru í opinberum útboðum. 14 Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum og atvikum málsins er það því niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki séu nægjanlega ríkar forsendur fyrir íhlutun eftirlitsins í samruna þennan. Hafa hér að ofan verið raktar forsendur Samkeppniseftirlitsins fyrir þeirri niðurstöðu. Að öllu framangreindu virtu er það því mat Samkeppniseftirlitsins að ekki séu nægjanlegar forsendur til íhlutunar í þessu máli á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga. IV. Ákvörðunarorð Kaup Icepharma hf. á meirihluta hlutafjár í Lyfis ehf. felur í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samkeppniseftirlitið telur ekki forsendur til þess að hafast frekar að í máli þessu. Samkeppniseftirlitið Páll Gunnar Pálsson 14 Í útboði 14549 Vörur fyrir kviðskilunarmeðferð fyrir Landspítala kærði Icepharma/Baxter útboðið sem Icepharma/Fresenius Medical Care hafði unnið. 7