Fimmtudagur, 13. desember, Ákvörðun nr. 31/2012

Similar documents
Miðvikudagur, 3. desember Ákvörðun nr. 35/2014

Fimmtudagur, 1. apríl fundur samkeppnisráðs

Ósk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um undanþágu vegna fagráðs um styrkflokkað timbur

Ósk um undanþágu frá ákvæði samkeppnislaga um bann við samstarfi keppinauta

Kaup Landsbankans hf. á eignarhlut í Verdis hf. (áður Arion verðbréfavarsla).

Kaup Sands ehf. á ISS Íslandi ehf.

Kaup Límtrés Vírnets ehf. á öllum hlutum í Bindir og Stál ehf.

Undanþága frá banni við samráði vegna samstarfs tæknimanna sem starfa að net- og upplýsingaöryggismálum fjármálafyrirtækja

Sameiginleg yfirráð Arion banka og Búvalla yfir Högum hf.

Fimmtudagurinn 27. september fundur samkeppnisráðs. Kvörtun Mallands ehf. vegna misnotkunar Hörpu hf. á markaðsráðandi stöðu. I.

Tryggð viðskiptavina við banka í kjölfar bankahrunsins. Þórhallur Guðlaugsson dósent Friðrik Eysteinsson aðjunkt

Meint brot Símans hf. með tilboði í 3G netlykil og áskrift

Samruni Icepharma hf. og Lyfis ehf.

Samruni Securitas hf. og Geymslna ehf.

Samruni WOW Air ehf. og Iceland Express ehf. Efnisyfirlit

Kaup Pressunnar ehf. á Birtingi útgáfufélagi ehf.

Málsástæður og lagarök Greinargerð andmælanda

Brot Forlagsins ehf. á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008 Samruni JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf.

I. Erindi Atlassíma ehf.

Málsýni. Aðferð til að meta málþroska barna. Jóhanna Einarsdóttir, Ester Sighvatsdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir

Sykursýkisdagbók ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI JANÚAR 2014 (BYGGT Á DIABETES HEALTH RECORD FRÁ THE DIABETES COALTILATION OF CALIFORNIA.)

Samruni Hampiðjunnar hf. og VOOT BEITU ehf.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 70/2007. Misnotkun Hf. Eimskipafélags Íslands á markaðsráðandi stöðu sinni

Samruni KS sölu ehf., Sláturhússins Hellu hf. og Skanka ehf.

Fimmtudagur, 17. október Ákvörðun nr. 24/2013

Samruni 365 miðla ehf. og Konunglega kvikmyndafélagsins ehf.

Hugbúnaður kemur ekki í stað fólks! Camilla Ósk Hákonardóttir

Nefndasvið Alþingis b.t. umhverfis- og samgöngunefndar Austurstræti Reykjavík. Reykjavík, 11. febrúar 2014

Brot Símans hf. með tilboði í 3G netlykil og áskrift

Ákvörðun Flugmálastjórnar Íslands nr. 69/2012 vegna kvörtunar um aflýsingu á flugi FI543 þann 23. júlí 2011

Þriðjudagurinn 9. maí fundur samkeppnisráðs. Kvörtun Iðnvéla ehf. yfir viðskiptaháttum Merkúrs ehf. I. Erindið

Aðgerðir til að efla samkeppni í almennri viðskiptabankaþjónustu við einstaklinga og lítil fyrirtæki

Rafræn mæling Capacent ehf. á notkun ljósvakamiðla

Kaup Almenna leigufélagsins ehf. á Leigufélaginu Kletti ehf.

Beiðni Forlagsins ehf. um endurupptöku ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008 um samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf.

Föstudagurinn, 19. september fundur samkeppnisráðs. Kvörtun Hasso Íslands ehf. yfir skráningu lénsins hasso.com

Kennaraglósur Excel Flóknari aðgerðir: Solver

Samruni Johan Rönning hf. og Efnissölu G.E. Jóhannssonar ehf.

Viðauki D. Svör PFS við athugasemdum vegna samráðs um lokadrög að ákvörðun um markað fyrir aðgang og upphaf símtala í almenn farsímanet (markaður 15)

Samruni GMR endurvinnslunnar ehf. og Hringrásar hf.

Miðvikudagurinn 23. maí fundur samkeppnisráðs

Miðvikudagur, 23. febrúar fundur samkeppnisráðs

Samtök iðnaðarins. - Viðhorf félagsmanna til Evrópumála

Skýrsla Samkeppniseftirlitsins nr. 1/2008. Viðskiptasamningar birgja og annað samstarf fyrirtækja á matvörumarkaði

Tíðniheimild Yellow Mobile B.V.

Úrskurður Einkaleyfastofunnar. í andmælamáli. nr. 2/2012. Rolex SA, Sviss. gegn. Prolex ehf, Íslandi

- Á grundvelli sáttar við Arion banka -

Auðkenni Super Jeep Drive. I. Erindið

Samruni Samhentra Kassagerðar hf. og Frjó Umbúðasölunnar ehf.

Vörumerki. Auðkenni markaðarins. Vörumerkjaréttur í stuttu máli Skráning vörumerkja Me höndlun umsókna Alþjó leg skráning vörumerkja

Kaup Alvogen Iceland ehf. á samheitalyfjum Teva á Íslandi

Umsögn Samkeppniseftirlitsins við drög að frumvarpi til nýrra laga um póstþjónustu

Reglur um bestu framkvæmd viðskipta Samþykkt í febrúar 2017/ Áætluð endurskoðun í febrúar 2018 / Ábyrgðaraðili: Regluvarsla

Uppsetning á Opus SMS Service

Samruni Arion banka hf., Varðar trygginga hf. og Varðar líftrygginga hf.

Föstudagurinn 26. febrúar 1999 kl. 11: fundur samkeppnisráðs. Fyrirhuguð kaup Coca-Cola Nordic Beverages A/S á öllu hlutafé í Vífilfelli ehf.

HVERSU LANGT NÆR VERND VÖRUMERKJA? ÓLÖGMÆT NOTKUN ÞRIÐJA AÐILA Á SKRÁÐU VÖRUMERKI MEÐ HLIÐSJÓN AF SAMKEPPNISLEGUM SJÓNARMIÐUM

Auðkennið ÍSFABRIKKAN. I. Erindið

Gagnasafnsfræði. Páll Melsted 16. sept

Fjárhagslegur aðskilnaður á grundvelli 14. gr. samkeppnislaga

Samruni Gæðabaksturs ehf. og Brauðgerðar Kr. Jónssonar og Co ehf.

MATVÖRUMARKAÐURINN Leiðbeinandi reglur um viðskipti birgja og matvöruverslana

Samkeppniseftirlitið B.t. Páls Gunnar Pálssonar/Ólafs Freys Frímannssonar Borgartúni Reykjavík. Reykjavík, 16. maí 2018

Ólöf Heiða Guðmundsdóttir. Vel þekkt vörumerki. -Meistararitgerð til Mag. jur. prófs í lögfræði - Umsjónarkennari: Hafdís Ólafsdóttir aðjúnkt

Brot Greiðslumiðlunar hf., Kreditkorts hf. og Fjölgreiðslumiðlunar hf. á bannákvæðum samkeppnislaga

Kaup Lyfja og heilsu hf. á Opnu ehf. Efnisyfirlit. bls. I. SAMANDREGIN NIÐURSTAÐA... 3 II. SAMRUNATILKYNNINGIN OG MÁLSMEÐFERÐ... 5

Ákvörðun Samgöngustofu nr. 1/2014 vegna kvörtunar um seinkun flugs X9 445 þann 16. ágúst 2013

1*1 Minnisblað Dags

Umsögn um frumvarp til laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði

Ákvörðun Samgöngustofu nr. 299/2018 vegna kvörtunar um aflýsingu á flugi nr. FI219 þann 17. desember 2017

Undanþágubeiðni vegna starfsemi Reiknistofu bankanna hf. og samruni við Teris

Samruni Fjarskipta hf. og 365 miðla hf.

*Tollverð. Úrskurður nr. 1/2004.

Mánudagurinn 12. janúar 1998 kl. 15: fundur samkeppnisráðs. Viðskiptahættir í greiðslukortastarfsemi. I. Málavextir og málsmeðferð

Ákvörðun nr. 2/2018. Fækkun dreifingardaga á pósti

Erindi WOW Air ehf. vegna úthlutunar Isavia ohf. á afgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli. Efnisyfirlit

3. Sameiginlega EES-þingmannanefndin. Orðsending frá Eftirlitsstofnun EFTA Tilkynning Leiðbeiningar um beitingu 3. mgr. 53. gr. EES-samningsins...

Ákvörðun nr. 10/2017

Samkeppnismat stjórnvalda

Reykjavík, 7. desember Úrskurður nr. 22/2017. Í dag var hjá embætti Tollstjóra kveðinn upp svofelldur Ú R S K U R Ð U R

Málavextir Þann 4. ágúst 2015 barst Einkaleyfastofunni tilkynning frá Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO)

Yfirtaka Stjörnugríss hf. á eignum Rekstrarfélagsins Brautar ehf. og LS2 ehf.

Samruni Nova hf. og Símafélagsins ehf.

Fjánnála- og efnahagsráðuneytisins. Efni: Upptaka reglugerðar ESB nr. 236/2012 um skortsölu og skuldatryggingar í íslenskan rétt.

Kvörtun Frostfisks ehf. yfir viðskiptaháttum fiskmarkaða

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 8 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR

ENDURMAT Á STUÐNINGSÞÖRF

Yfirtaka Seðlabanka Íslands á Fjölgreiðslumiðlun hf. (nú Greiðsluveitunni hf.)

4) Þá ertu kominn inná routerinn og ætti valmyndin að líta út eins og sýnt er hér til hægri. 5) Því næst er smellt á Wizard setup

Heildsölugjaldskrá Mílu fyrir IP talsímaþjónustu á aðgangsleið 3 (Markaður 5/2008)

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 40 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR

Viðskiptasvið. Markaðssetning nýrrar hönnunar Lykilþættir í markaðssetningu

*Tollverð *Gjafaafsláttur. Úrskurður nr. 1/2009

Neyðarlögin og stjórnsýsluréttur

Frumvarp til laga. um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Frá dómsmálaráðherra.

Varðveisla gagna í stjórnsýslunni

Frumvarp til laga. Frá fjármála- og efnahagsráðherra.

Áhrif aldurs á skammtímaminni

Viðauki A. - Markaðsgreining - Greining á heildsölumarkaði fyrir lúkningu símtala í einstökum föstum almennum talsímanetum (Markaður 1/2016)

ÍÞRÓTTADEILD. Vildbjerg - Danmark

Transcription:

Fimmtudagur, 13. desember, 2012 Ákvörðun nr. 31/2012 Ósk leigubílastöðvarinnar Hreyfils um undanþágu frá bannákvæðum samkeppnislaga til að gefa út sameiginlegan ökutaxta fyrir leigubifreiðar sem aka undir merki stöðvarinnar. I. Samkeppniseftirlitinu barst erindi frá leigubílastöðinni Hreyfli (Hreyfill), dags. 2. nóvember 2012, þar sem óskað er eftir undanþágu til að gefa út sameiginlegan hámarksökutaxta fyrir bílstjóra sem aka á bifreiðastöð Hreyfils. Í undanþágubeiðninni er m.a. vísað til þess að stjórn Hreyfils hafi veika stöðu við ákvörðun ökutaxta leigubílstjóranna og er óskað eftir að tekið verði tillit til þess við úrlausn Samkeppniseftirlitsins. Í síðari samskiptum við Hreyfil kom fram sú nánar tilgreinda ósk að stjórn félagsins fengi áheyrnarfulltrúa á fundum verðlagsnefndar bílstjóra á Hreyfli. Forsaga þessa máls er sú að um langa hríð tóku leigubílstjórar í landinu gjald fyrir akstur í samræmi við gildandi hámarksökutaxta. Hámarksökutaxti leigubíla var gefinn út af Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra (BÍLS) að undangengnu samþykki verðlags- og síðar samkeppnisyfirvalda á verðbreytingum. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2006 Afnám á hámarkstöxtum leigubifreiða sem Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra gefur út, sem birt var 7. febrúar 2006, kvað á um að frá og með 1. maí 2006 skyldi falla úr gildi hámarksökutaxti fyrir leigubifreiðar sem gefinn hafði verið út af BÍLS. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti ákvörðun Samkeppniseftirlitsins með úrskurði sínum nr. 2/2006. Áréttað var í ákvörðuninni að eftir gildistöku hennar yrði fyrirtækjum sem rækju leigubifreiðar, þ.e. hverjum þeim sem ætti og ræki leigubifreið, hvort heldur sem væri frá leigubifreiðastöð eða á annan hátt, leigubifreiðastöðvum og samtökum leigubifreiðastjóra óheimilt að hafa með sér hvers konar samstarf eða samskipti um ökutaxta og önnur verðlagsmál eða annað sem færi gegn 10. og 12. gr. samkeppnislaga. Með þessari ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var fallið frá því fyrirkomulagi að verðlagning fyrir þjónustu leigubifreiða væri miðstýrð. Þann 30. júní 2006 birti Samkeppniseftirlitið ákvörðun nr. 23/2006 þar sem fallist var á ósk Hreyfils um heimild til að fá að gefa út hámarkstaxta fyrir bifreiðastjóra á stöðinni.

Heimildin var tímabundin og í henni voru sett skilyrði fyrir undanþágunni. Var kveðið á um að hagsmunafélag leigubílstjóra á leigubifreiðastöðinni tæki ákvörðun um hámarksökutaxtann og einnig voru sett skilyrði sem lutu að því hvernig ökutaxtinn væri gerður sýnilegur farþegum. Með þessari ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var stefnt að því að leigubifreiðastöðvar gætu stundað samkeppni sín á milli með ólíkri verðlagningu fyrir þjónustu sína. Í framhaldi af þessu hefur Samkeppniseftirlitið tekið aðrar sambærilegar ákvarðanir þar sem öðrum bifreiðastöðvum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið veitt sams konar undanþága. Í samræmi við skilyrði í undanþáguákvörðunum Samkeppniseftirlitsins til handa leigubílastöðvum hafa verið kosnar verðlagsnefndir í hagsmunafélögum bílstjóra á hverri stöð sem hafa ákveðið verðbreytingar á viðkomandi stöðvum. Í fyrrnefndu bréfi Hreyfils, dags. 2. nóvember sl., kemur fram það sjónarmið, að óheppilegt sé að stjórn Hreyfils hafi enga aðkomu að ákvörðunum verðlagsnefndar bifreiðastjóra Hreyfils. Í bréfinu eru tiltekin dæmi sem sýna hvernig það fyrirkomulag sem gilt hefur getur skaðað hagsmuni stöðvarinnar. Samkeppniseftirlitið sendi af því tilefni fyrirspurn til leigubílastöðva á höfuðborgarsvæðinu, til verðlagsnefnda þeirra og til hagsmunafélaga leigubílstjóra og spurðist fyrir um afstöðu þessara aðila til þess að stjórnir leigubílastöðvanna fengju á einhvern hátt að taka þátt í ákvörðunum um hámarksökutaxta. Bárust svör frá nokkrum aðilum. Verðlagsnefndir Hreyfils, BSR og Borgarbílastöðvarinnar lögðust gegn breytingum á þessu fyrirkomulagi. Af hálfu stóru leigubílastöðvanna, Hreyfils og BSR, voru breytingar í þessa veru hins vegar taldar æskilegar. Taldi Hreyfill að rétt væri að stjórn Hreyfils hefði áheyrnarfulltrúa á fundum verðlagsnefnda. Þá taldi BÍLS, Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra, og Bifreiðastjórafélagið Frami, að eðlilegt væri að stöðvarnar ættu áheyrnarfulltrúa á fundum verðlagsnefnda. II. Niðurstöður Skv. 4. gr. samkeppnislaga er markaður sölusvæði vöru og staðgengdarvöru og/eða sölusvæði þjónustu og staðgengdarþjónustu. Hagfræðileg rök leiða til þess að skoða verður viðkomandi markað út frá a.m.k. tveimur sjónarhornum, vöru- eða þjónustumarkaðnum og landfræðilega markaðnum. Til landfræðilegs markaðar telst það svæði þar sem hlutaðeigandi fyrirtæki eru viðriðin framboð og eftirspurn eftir viðkomandi vöru og þjónustu, þar sem samkeppnisskilyrði eru nægilega lík og sem unnt er að greina frá nærliggjandi svæðum, einkum vegna þess að samkeppnisskilyrði eru greinilega frábrugðin á þeim svæðum. Til vöru og þjónustumarkaðar telst öll sú vara eða þjónusta sem falboðin er sem talið er að geti verið staðgönguvara eða þjónusta frá sjónarmiði neytanda vegna eiginleika vörunnar eða þjónustunnar, verðs hennar eða fyrirhugaðrar notkunar. 1 1 Commission Notice on the definition of the relevant market for the purposes of Community competition law. Sótt á http://ec.europa.eu/comm/competition/antitrust/relevma_en.html. 2

Að mati Samkeppniseftirlitsins eru þjónustumarkaðir þessa máls tveir. Annars vegar er markaður sem leigubílastöðvar starfa á, en þær þjónusta leigubílstjóra á ýmsa lund og neytendur eða farþega með því að koma á sambandi milli þeirra og bílstjóranna, td. gegnum síma og tölvukerfi. Þá annast stöðvarnar markaðsstarf til að örva viðskipti. Hins vegar er markaður leigubílstjóra sem kaupa þjónustu af leigubílastöðvunum en selja neytendum leigubílaakstur. Leigubílastöðvar Hreyfill starfar á takmörkunarsvæði sem nær yfir höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin. Landfræðilegi markaðurinn afmarkast af þessu sama svæði, sbr. reglugerð nr. 397/2003 og fyrrgreindar ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins frá því fyrr á þessu ári og frá árinu 2006. Á þessu takmörkunarsvæði starfa nú fimm leigubílastöðvar. Þær eru A - stöðin í Reykjanesbæ, Hreyfill, BSR, Borgarbílastöðin, og Borgarleiðir sem starfa í Reykjavík. Leigubílastöðin Hreyfill er samvinnufélag leigubílstjóra sem aka frá Hreyfli. Félagið er opið bílstjórum á Hreyfli og eru félagsmenn um 230 en bílstjórar hjá stöðinni eru fleiri eða um 360 talsins. Þjónusta leigubílastöðva við leigubílstjóra felst m.a. í símsvörun og miðlun upplýsinga til bílstjóranna um ferðir með farþega. Þá sjá bifreiðastöðvarnar um nótuviðskipti og afla í sumum tilvikum afsláttarsamninga fyrir stórnotendur, sem bílstjórar á þeirra vegum sjá svo um að sinna. Leigubílastöðvar gegna einnig lögbundnu eftirlitshlutverki gagnvart bílstjórum. Í sumum tilvikum reka leigubílastöðvar þvottaaðstöðu fyrir bílstjóra stöðvarinnar. Þá ber að horfa til þess að leigubílastöðvar sinna markaðsstarfi gagnvart neytendum og byggja upp viðskiptavild hjá þeim. Þó að leigubílastöðvar hafi til þessa ekki haft, eins og venjulegast er um fyrirtæki sem starfa á markaði, stjórn á verðlagningu þeirrar þjónustu sem þær hafa markaðssett og eftir atvikum selt, ber að horfa til þess að þær hafa þrátt fyrir það getað haft áhrif á þjónustustig leigubílanna með því að setja viðmið um þjónustu sem veitt er af hálfu viðkomandi stöðvar. Með slíkum aðgerðum hafa sumar leigubílastöðvar í tímans rás byggt upp stóran hóp viðskiptavina í samstarfi við bílstjóra sína. Upplýsingar frá Vegagerðinni um leigubílstjóra á þessu takmörkunarsvæði gefa til kynna að markaðshlutdeild Hreyfils sé um 60-70% ef miðað er við fjölda leigubifreiða sem bifreiðastöðin þjónustar. Leigubílar/leigubílstjórar Leigubílstjórar sem kaupa aðstöðu og þjónustu hjá Hreyfils starfa á hinum landfræðilega markaði þessa máls, þ.e. því takmörkunarsvæði sem nær yfir höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin. Takmörkunarsvæðið er kallað svo af því að aðgangur nýrra bifreiðastjóra er takmarkaður og að öðru jöfnu óheimill nema þegar einhver þeirra bifreiðastjóra sem fyrir voru hefur hætt störfum, og þá aðeins að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Á svæðinu geta allt að 560 atvinnubílstjórar starfað á hverjum tíma, skv. ákvæðum reglugerðar um leigubifreiðar. Leigubílstjórar eru ýmist eigendur eða umráðamenn leigubíla sinna og frá sjónarmiði samkeppnislaga reka þeir hver fyrir sig sérstök fyrirtæki um leigubílana. Í 3. gr. laga um leigubifreiðar nr. 134/2001 er kveðið á um að allar leigubifreiðar sem starfræktar eru á 3

takmörkunarsvæði, sbr. höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin, skuli hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð. Á takmörkunarsvæði höfuðborgarsvæðisins eru starfræktar nokkrar leigubílastöðvar og hafa leigubílstjórar því nokkurt svigrúm við val á leigubílastöð, m.a. út frá forsendum um ríkjandi þjónustu- og verðlagningarstefnu leigubílastöðvanna og viðskiptavinahópa þeirra. III. Samkeppniseftirlitið telur að þær forsendur sem lágu til grundvallar fyrri undanþágu með ákvörðun nr. 47/2008 séu enn til staðar, en þó hefur átt sér stað sú breyting að fram hefur komið ósk frá Hreyfli um að stjórn leigubílastöðvarinnar Hreyfils fái aukna aðkomu og nánar tiltekið áheyrnarfulltrúa á fundum hagsmunafélags leigubílstjóranna sem fjallar um hámarksökutaxta stöðvarinnar. Rétt er að taka fram að Samkeppniseftirlitið telur að úr ýmsu þurfi að bæta til þess að virk samkeppni fái betur þrifist á markaðnum. Að mati stofnunarinnar má rekja helstu ástæður þess að eðlileg samkeppni fær ekki þrifist nægjanlega til þess laga og reglugerðaverks sem gildir um leigubifreiðaakstur hér á landi sbr. álit stofnunarinnar nr. 2/2007, Samkeppnishömlur á markaði fyrir leigubifreiðar sem leiða af ákvæðum laga og reglna um leigubifreiðar. Með vísan til framanritaðs telur Samkeppniseftirlitið forsendu á grundvelli 15. gr. samkeppnislaga til þess að veita tímabundna undanþágu í máli þessu. Samkeppniseftirlitið telur jafnframt eðlilegt með vísan til ofangreindrar umfjöllunar að verða við ósk stjórnar Hreyfils um að áheyrnarfulltrúi stjórnarinnar geti setið á fundum hagsmunafélagsins sem tekur ákvörðun um ökutaxtann. Telur Samkeppniseftirlitið rétt að veita Hreyfli heimild, með neðangreindum skilyrðum, til að gefa út og birta hámarksökutaxta fyrir bifreiðastjóra sem aka undir merkjum bifreiðastöðvar Hreyfils til 31. desember 2014. Skilyrði fyrir heimild þessari eru eftirfarandi: 1) Að ákvörðun um hámarksökutaxta fyrir leigubifreiðastjóra á Hreyfli verði tekin af hagsmunafélagi leigubifreiðastjóra á Hreyfli eða eftir atvikum verðlagsnefnd á vegum hagsmunafélagsins. Stjórn Hreyfils skal heimilt að skipa fulltrúa sinn til að sitja fundi hagsmunafélagsins eða verðlagsnefndar þess þar sem fjallað er um og tekin ákvörðun um hámarksökutaxta á leigubílastöðinni. 2) Að hámarksökutaxti sá sem ákveðinn verður af hagsmunafélaginu eða verðlagsnefnd þess verði prentaður með stóru og auðlæsilegu letri á spjald. Á spjaldið skal einnig fest auðkenni bifreiðastöðvar Hreyfils. Spjald þetta skal vera plastað þannig að allar upplýsingar sem á því standa séu undir plastinu. Spjaldið skal vera tryggilega fest á áberandi stað í leigubifreiðinni þannig að það blasi við farþegum hennar. Fyrra skilyrðið hefur þann tilgang að tryggja að ákvörðun um hámarksökutaxta sé tekin af félagi leigubifreiðastjóranna sjálfra. Ákvæði um að stjórn Hreyfils hafi áheyrnarfulltrúa er ætlað að tryggja leigubílastöðinni eðlilega aðstöðu, t.a.m. í því skyni að sinna markaðsstarfi. Síðara skilyrðið hefur þann tilgang að tryggja það, gagnvart farþegum, að 4

sá taxti sem ekið er eftir sé að hámarki hinn samræmdi taxti Hreyfils sem nýtur undanþáguheimildar Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið telur rétt að benda á að berist stofnuninni síðar ósk frá Hreyfli um að undanþága þessi verði framlengd enn frekar munu ofangreind skilyrði og hugsanlega önnur skilyrði koma til skoðunar. IV. Ákvörðunarorð: Með heimild í 15. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 veitir Samkeppniseftirlitið bifreiðastöðinni Hreyfli heimild til að gefa út hámarksökutaxta fyrir bifreiðastjóra sem aka undir merkjum Hreyfils. Heimildin sem veitt er til 31. desember 2014 er bundin eftirfarandi skilyrðum: 1) Að ákvörðun um hámarksökutaxta fyrir leigubifreiðastjóra á Hreyfli verði tekin af hagsmunafélagi leigubifreiðastjóra á Hreyfli eða eftir atvikum verðlagsnefnd á vegum hagsmunafélagsins. Stjórn Hreyfils skal heimilt að skipa fulltrúa sinn til að sitja fundi hagsmunafélagsins eða verðlagsnefndar þess þar sem fjallað er um og tekin ákvörðun um hámarksökutaxta á leigubílastöðinni. 2) Að hámarksökutaxti sá sem ákveðinn verður af hagsmunafélaginu eða verðlagsnefnd þess verði prentaður með stóru og auðlæsilegu letri á spjald. Á spjaldið skal einnig fest auðkenni bifreiðastöðvar Hreyfils. Spjald þetta skal vera plastað þannig að allar upplýsingar sem á því standa séu undir plastinu. Spjaldið skal vera tryggilega fest á áberandi stað í leigubifreiðinni þannig að það blasi við farþegum hennar. Samkeppniseftirlitið Páll Gunnar Pálsson 5