Leiðarvísir að tölvuþjónustu Reiknistofnunar

Similar documents
4) Þá ertu kominn inná routerinn og ætti valmyndin að líta út eins og sýnt er hér til hægri. 5) Því næst er smellt á Wizard setup

Kennaraglósur Excel Flóknari aðgerðir: Solver

Sykursýkisdagbók ÚTGEFANDI: LANDSPÍTALI JANÚAR 2014 (BYGGT Á DIABETES HEALTH RECORD FRÁ THE DIABETES COALTILATION OF CALIFORNIA.)

Uppsetning á Opus SMS Service

Inngangur. Web ADI skjöl. Október, 2018 [WEB ADI - NOTENDALEIÐBEININGAR]

Tölvupóstuppsetning á GSM síma

Hvernig getum við uppfyllt þarfir kaupenda á netinu?

Tölvupóstuppsetning á GSM síma

Uppsetning á biðlarahugbúnaði (ALEPH GUI client): útg í Windows 7, 8 og 10.

Vefskoðarinn Internet Explorer

Málsýni. Aðferð til að meta málþroska barna. Jóhanna Einarsdóttir, Ester Sighvatsdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir

Númer 45 - Desember 2008 RHÍ FRÉTTIR FRÉT TABRÉF REIKNISTOFNUNAR HÁSKÓL A ÍSL ANDS

Ronald Postma: Kitchen appliance to grow mushrooms was the project. Plugin Neon for Rhino and downloaded Bongo.

Hugbúnaður kemur ekki í stað fólks! Camilla Ósk Hákonardóttir

Gagnasafnsfræði. Páll Melsted 16. sept

spjaldtölvur í skólastarfi

FYRSTI ÍSLENSKI VEFURINN

The students sat in serried ranks, They wrote with all their might. But as they wrote it all by rote, They did not write it right.

Öryggisstefna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í upplýsingatækni

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ. Nemendur vinna hópverkefni þar sem þau þurfa að kynna sér helstu markverðu staðina

Kynning á CareLink hugbúnaði. Að finna mikilvægt púsl í sykurstjórnun og hjálpa þér við að bæta meðferðina þína

Námsaðstoð í stærðfræði á netinu

Tryggð viðskiptavina við banka í kjölfar bankahrunsins. Þórhallur Guðlaugsson dósent Friðrik Eysteinsson aðjunkt

Yfirlit. Handbók útg.1.4 Nóri skráningar- og greiðslukerfi Apríl 2013 Bls.1

HVAÐ SKAL SEGJA? Ásrún Matthíasdóttir 1

RHÍ FRÉTTIR FRÉTTIR FRÉTTABRÉF REIKNISTOFNUNAR HÁSKÓLA ÍSLANDS DESEMBER 2015

Skráning lýsigagna samkvæmt kröfum INSPIRE - Leiðbeiningar -

Leiðbeinandi: Snorri Guðjónsson. Lærum að útbúa PDF

OFBELDI (HUGTAKALEIKUR)

VIÐAUKI VIÐ THE BLACKBERRY SOLUTION LEYFISSAMNINGINN FYRIR BLACKBERRY VIÐSKIPTALEGA SKÝJAÞJÓNUSTU FYRIR MICROSOFT OFFICE 365 ( VIÐAUKINN )

Notandaleiðbeiningar Rental Inspection for Annata Dynamics RENT on Windows 8.1

RHÍ FRÉTTIR RHÍ FRÉTTIR

Stefna RIM um gagnaleynd

VIKA VIÐFANGSEFNI EFNISTÖK NÁMSEFNI ANNAÐ

Lokaverkefni til B.Ed. -prófs. Gagnvirkar töflur. Greinargerð með heimasíðu og kennslumyndböndum. Hólmfríður Ásmundsdóttir

Hvað eru ICC litaprófílar? Til hvers eru þeir?

Skráning lýsigagna - Landupplýsingagáttin - Leiðbeiningar

Námsvefur um GeoGebra

Samtök iðnaðarins. - Viðhorf félagsmanna til Evrópumála

KENNSLUAÐFERÐIR. Kennarmiðuð kennsla Nemendamiðuð kennsla Nemendasamfélagsmiðuð kennsla Tæknimiðuðu kennsla

Númer 48 - Desember 2011 RHÍ FRÉTTIR FRÉTTABRÉF REIKNISTOFNUNAR HÁSKÓLA ÍSLANDS

VIÐSKIPTASVIÐ. Hvaða þættir skipta máli í innleiðingu CRM? Út frá reynslu stærstu fyrirtækja Íslands

FA EIGNAKERFIÐ. Notendahandbók. vegna biðskrá

skjá kort mús floppý ESD móðurborð tölva stýrikerfi kælivifta kort Harður diskur ROM SATA minni Tölvur og nettækni drif RAM tengibrú snúningshraði

Handbók fyrir kennara við Háskóla Íslands

Orðaforðanám barna Barnabók

Heimildir og tilvísanir. Rétt notkun tilvísana og uppsetning heimildaskrár

Samþykkjandi. Samþykktarferill í ORRA. Leiðbeiningar fyrir samþykkjanda. Útg. 2,0 - Apríl 2017

Verkbeiðna- og verkáætlunarkerfi

Leiðsagnarmat í Menntaskóla Borgarfjarðar Hvernig hefur okkur miðað?

og æfingakennsla Ég sem kennari: Starfskenning mín

BLACKBERRY LAUSNAR LEYFISSAMNINGUR

BS ritgerð. Lokaverkefni um Skype og Skype í farsíma

1. janúar 2015 Nýir skilmálar Facebook persónuverndarsjónarmið

Eins og ég sagði í byrjun, þegar ég var að leita að öfgadæmi, þá get ég ef til vill ekki leyft mér að

Vefsmíðar. Kóðinn, HTML og CSS. Þessi bók er hluti af þriggja bóka flokki, hinar eru Viðmót, hönnun og verklag og Dreamweaver og önnur tól

Er Sun StarOffice valkostur fyrir skóla?

1 Inngangur Hvað er frammistöðumat og hvernig á að mæla það? gráðu mat/endurgjöf Gagnrýni á 360 gráðu mat...

Aðgengismál fyrir byrjendur

Vörumerki. Auðkenni markaðarins. Vörumerkjaréttur í stuttu máli Skráning vörumerkja Me höndlun umsókna Alþjó leg skráning vörumerkja

RefWorks - leiðbeiningar

Leiðbeiningar um gerð grisjunaráætlana

Handbók kennarans. Leiðarvísir í fjölmenningarlegu námssamfélagi 10/12/2015

RefWorks - leiðbeiningar

Rannsóknamiðstöð ferðamála 2013

MS ritgerð Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti. Notkun Facebook til markaðsfærslu á Íslandi

Action. Ready for KENNSLULEIÐBEININGAR

Windows snjallforrit/apps og samnýting á kóða fyrir IOS og Android með Xamarin

Develop Implement a process, develop yourself is a personal thing. developed is something that has been worked on.

Val starfsmanna og starfa til fjarvinnu

Tilvist og uppbygging áfallaáætlana í grunnskóla

Mynd: Mismunandi FTTH-högun

Rafræn náms- og starfsráðgjöf á Íslandi

Action. Ready for KENNSLULEIÐBEININGAR

Hvað mótar hugmyndir háskólakennara um skipulag náms og kennslu?

Spurningar og svör. Yfirlit

Kynning á námskeiðinu Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun. Tungumálatorgið. Miðja efnis og upplýsinga Vettvangur samstarfs

Fartölvur í námi og kennslu í Menntaskólanum á Akureyri

TÖL203F Reiknirit, rökfræði og reiknanleiki

Zotero sett upp á Windows stýrikerfi

Jákvæð samskipti af hverju eru þau mikilvæg? Páll Ólafsson Félagsráðgjafi

Kennsluverkefni um Eldheima

Reglur um veiðipróf fyrir retriever hunda

Frammistaða í þjónustuþáttum og forgangsröðun úrbóta

Name of the University: Copenhagen Business School Names of the students: Snorri Páll Sigurðsson og Tómas Björnsson Exchange semester: Spring, 2012

Áhrif staðsetningar og útfærslu mislægra gatnamóta á umferðaröryggi

Hugvísindasvið. Annað líf. Er réttlætanlegt að ætla samþykki fyrir líffæragjöf? Ritgerð til MA-prófs í hagnýtri siðfræði.

Internetið og íslensk ungmenni

Ferð til Brussel til að taka þátt í ráðstefnu um starfsmenntun og vinnustaðanám. Febrúar 2014.

Þunglyndi og depurð. Leiðbeiningabæklingur

- Kerfisgreining með UML

Samtal er sorgar læknir

Lean Cabin - Icelandair

MS ritgerð Stjórnun og stefnumótun. Námstengd hvatning

PIXELCALC: FORRIT TIL MÆLINGA Á STÆRÐ GOSMAKKA ÚT FRÁ STAFRÆNUM MYNDUM. Rögnvaldur Líndal Magnússon

Könnunarverkefnið. Unnið var með Könnunaraðferðinni (The Project Approach). Stuðst var við bókina Young Investigators

Háskólinn á Bifröst Viðskiptafræðisvið. Vorönn Hvetur Social Business Software til nýsköpunar í íslenskum fyrirtækjum?

LEIÐBEININGARRIT FRJÁLS OG OPINN HUGBÚNAÐUR

Áhrif aldurs á skammtímaminni

Facebook og flokkarnir: Rannsókn á notkun íslenskra stjórnmálaflokka á samfélagsmiðlum

Transcription:

Nýnemar Hvar eru tölvuver? Hvernig tengi ég fartölvuna við þráðlausa netið? Hvar fæ ég aðgang að Uglu? Hvernig nálgast ég tölvupóstinn minn? Leiðarvísir að tölvuþjónustu Reiknistofnunar Flip over for English version

Efnisyfirlit Til hvers að lesa þennan bækling?...3 Reiknistofnun Háskóla Íslands...3 Hvert er hlutverk Reiknistofnunar? Tölvuþjónusta RHÍ...4 Er Tölvuþjónusta RHÍ eitthvað annað en Reiknistofnun? Veitir Tölvuþjónusta RHÍ aðstoð varðandi öll tölvumál? Notendanafn og lykilorð... 5 Hvernig fæ ég notendanafn? Er mikilvægt að muna notendanafn sitt og lykilorð? Hvernig get ég fengið nýtt lykilorð ef ég er búin(n) að gleyma því? Er hægt að breyta þessu flókna lykilorði? Ugla...6 Hvað er Ugla? Forsíða Uglan mín Kennsluvefur - Námskeiðin mín Skráning í námskeið Tölvuver...8 Hvar eru tölvuverin? Hvað þarf ég að vita áður en ég skrái mig inn í tölvu í tölvuveri? Prentun...9 Hvar er hægt að prenta út? Hvar get ég ljósritað og/eða skannað? Heimasvæði... 10 Tölvupóstur og dagatal... 10 Hvernig nálgast ég tölvupóstinn minn? Er rafrænt dagatal í boði? Nettengingar...11 Þráðlaust net á háskólasvæðinu Eduroam Garðanet VPN tenging ADSL tenging Hvað má ég hlaða miklu niður í gegnum HINET? Gagnlegir tenglar... 13 Kort af háskólasvæðinu - Vesturbær... 14 Til hvers að lesa þennan bækling? Í þessum bæklingi er að finna svör við helstu spurningum nemenda sem snúa að tölvu- og tæknimálum. Svo í staðinn fyrir að klóra sér í hausnum og bíða í biðröðum eftir lausnum varðandi ýmis tölvuvandamál þá er upplagt að renna yfir bæklinginn og fá betri innsýn inn í tölvu- og tæknimál háskólans. Áður en lengra er haldið skal þess getið að á vefsíðu Reiknistofnunar rhi.hi.is er að finna fjöldann allan af leiðbeiningum. Í þessum bæklingi verður vísað á vefslóðir fyrir viðeigandi leiðbeiningar auk svokallaðs QR kóða sem hægt er að skanna inn með snjallsímum og komast þannig beint inn á viðkomandi síður á netinu. rhi.hi.is Reiknistofnun Háskóla Íslands Tölvuþjónusta RHÍ 2. hæð Háskólatorgi. Opið kl. 8:00-16:00 alla virka daga. Sími: 525 4222 Tölvupóstur: help@hi.is Leiðarvísir að tölvuþjónustu Reiknistofnunar 2 útgáfa 2012 Reiknistofnun Háskóla Íslands Hvað er Reiknistofnun Háskóla Íslands? Reiknistofnun var stofnuð í kringum vél sem Háskóli Íslands fékk árið 1964 og var kölluð rafheili. Vélin hafði einungis það hlutverk að reikna en þaðan er nafn Reiknistofnunar fengið. Þess má geta að á þeim tíma var orðið tölva enn ekki til í íslenskri tungu. Reiknistofnun gengur einnig undir nöfnunum Reiknistofnun HÍ, RHÍ og Tölvuþjónusta RHÍ. 2 3

Hvert er hlutverk Reiknistofnunar? Reiknistofnun rekur tölvu-, net- og símkerfi Háskóla Íslands og hefur meðal annars umsjón með: Þráðlausa netinu og öðrum nettengingum Uglu - Innra neti HÍ Prenturum, tölvubúnaði og hugbúnaði í tölvuverum HÍ Tölvupóstkerfi HÍ Heimasvæðum notenda Notendanöfnum og lykilorðum Þar að auki sér Reiknistofnun um að veita öfluga þjónustu við stofnanir, deildir og starfsfólk HÍ. www.rhi.hi.is/starfsemi_reiknistofnunar Tölvuþjónusta RHÍ Notendanafn og lykilorð Hvernig fæ ég notendanafn? Er Tölvuþjónusta RHÍ eitthvað annað en Reiknistofnun? Nýnemar geta fengið notendanafn og lykilorð uppgefið á umsóknarsíðunni Tölvuþjónusta RHÍ er sá hluti nynemar.hi.is um leið og greiðsla hefur borist og Reiknistofnunar sem nemendur og starfsmenn hafa umsóknin er afgreidd á síðunni. Hver nemandi á sitt beinan aðgang að. Ef upp koma vandamál sem snúa að notendanafn á meðan hann stundar nám við HÍ og Reiknistofnun þá skal hafa samband við Tölvuþjónustu heldur því eftir brautskráningu. RHÍ. Tölvukerfi Reiknistofnunar úthlutar notendanöfnum Tölvuþjónusta RHÍ er staðsett á 2. hæð á Háskólatorgi á með þeim hætti að nota fremstu stafi í for-, millimilli þjónustuborðs og tölvuvers. og eftirnafni viðkomandi að viðbættum hlaupandi Opnunartími er milli klukkan 8.00 og 16.00 alla virka tölustöfum. Með þessum hætti er hægt að gera daga. notendum kleift að halda aðgangi sínum eftir útskrift. Þannig þarf Reiknistofnun aldrei að endurúthluta Einnig er hægt að nálgast aðstoð í síma 525 4222 eða sama notendanafninu. Það kemur meðal annars í veg með því að senda tölvupóst á help@hi.is. fyrir ýmis vandkvæði sem gætu fylgt endurúthlutun. Menntasmiðjan í Stakkahlíð aðstoðar einnig nemendur Nemendur geta ekki sótt um breytingu á notendanöfnum, nema í sérstökum undantekningartilfellum með tölvutengd vandamál (sjá tengil á síðu 13). t.d. þegar skammstöfun raðast óheppilega. Veitir Tölvuþjónusta RHÍ aðstoð varðandi öll tölvumál? Tölvuþjónusta RHÍ veitir almenna aðstoð varðandi Er mikilvægt að muna notendanafn sitt og lykilorð? tölvumál tengd HÍ eins og að tengjast þráðlausa netinu Já það er afar mikilvægt því notendanafnið er einkenni eða útvega nýtt lykilorð. hvers notanda í öllum tölvukerfum Reiknistofnunar Tölvuþjónusta RHÍ gerir t.d. ekki við bilaðar tölvur hjá t.d. Uglu, tölvuverum, heimasvæðum, í tengslum við nemendum eða veitir kennslu á einstaka forrit eins og nettengingar og svona mætti lengi telja. Office. Hins vegar mun Tölvuþjónusta RHÍ ávallt reyna Notendanafnið er einnig hluti af netfangi viðkomandi. að leiðbeina öllum notendum og beina vandamálum Þannig væri t.d. netfang nemanda með notendanafnið þeirra í réttan farveg, því er velkomið að leita ráða hjá abc12, abc12@hi.is. þeim. 4 5

Notendum er bent á að passa einstaklega vel upp á lykilorðið sitt og gefa það aldrei upp eða lána öðrum. Einnig skal það skýrt tekið fram að aldrei skal senda lykilorðið sitt með tölvupósti. Einstaka sinnum sleppur póstur í gegnum síurnar hjá okkur (sem þó stöðva hundruð þúsunda ruslpósta á hverjum degi) sem óska eftir notendanafni og lykilorði og virðist koma frá okkur eða öðrum stofnunum HÍ. ATH að þær beiðnir koma ekki frá okkur og munum við aldrei óska eftir lykilorði ykkar í gegnum tölvupóst. Reglan er einföld: ALDREI að gefa upp lykilorð með tölvupósti. Hvernig get ég fengið nýtt lykilorð ef ég er búin(n) að gleyma því? Tapist eða gleymist lykilorð er hægt að nálgast nýtt hjá Tölvuþjónustu RHÍ, á þjónustuborði Háskólatorgs eða hjá Menntasmiðjunni í Stakkahlíð. Ávallt skal framvísa skilríkjum til þess að fá nýtt lykilorð. Til þess að gæta fyllsta öryggis úthlutar Reiknistofnun ekki nýju lykilorði í gegnum tölvupóst eða síma. Er hægt að breyta þessu flókna lykilorði? Notendur geta auðveldlega breytt lykilorði sínu og er það gert í Uglu á ugla.hi.is undir Uglan mín- > Breyta lykilorði. Ath. greinamunur er á há- og lágstöfum í lykilorðum og öll lykilorð skulu vera 8 stafir að lengd. www.rhi.hi.is/breyta_lykilordi og hlutverk hvers notanda. Aðgangi er stýrt út frá notandanafni en þannig sér hver notandi sína persónulegu Uglu. Það þýðir að viðkomandi getur stillt forsíðuna og sett inn upplýsingar um sig o.s.frv. Innan Uglu er að finna upplýsinga-, samskipta- og skráningarkerfi sem snúa að námi og starfi innan Háskólans. Gott er að skoða kynningarmyndband Uglunnar hér: www.rhi.hi.is/ugla Hér að neðan er farið í nokkra þætti Uglu sem nýnemar ættu að kynna sér. Forsíða Við fyrstu sýn gæti forsíða Uglu virkað flókin. Ugla er þó vingjarnleg og gerir notendum kleift að endurskipuleggja forsíðuna eins og hentar hverjum og einum. Þannig geta notendur lokað kössum sem þeir hafa engan áhuga á og bætt við öðrum sem þeir vilja frekar hafa á forsíðu Uglu. http://www.rhi.hi.is/breyta_forsidu_uglu Uglan mín Undir Uglan mín er að finna helstu stillingar eins og að breyta lykilorði, setja inn mynd eða aðrar upplýsingar um sjálfan sig. Gott er að renna í gegnum möguleikana þegar farið er inn í Uglu í fyrsta sinn. Kennsluvefur - Námskeiðin mín Kennsluvefur (Námskeiðin mín) nefnist sá hluti sem snýr að náminu. Þar er að finna öll námskeið og námskeiðsgögn sem kennarar setja inn. Þar er einnig að finna hópumræður þar sem nemendur og kennarar geta rætt málin. Ugla Hvað er Ugla? Innri vefur HÍ heitir Ugla en hún er samansafn af vinnutækjum fyrir nemendur og starfsmenn. Notendur þurfa að skrá sig inn með notandanafni og lykilorði. Aðgangur að kerfum Uglu er mismunandi og miðast við þarfir Skráning í námskeið Í mars á hverju ári fer fram árleg námskeiðsskráning og endurskoðun skráninga er í upphafi hvers misseris. Það er mikilvægt að nemendur nýti þessi tímabil því það er ekki í boði að skrá sig í og úr námskeiðum eftir að frestur rennur út hverju sinni. 6 7

Tölvuver Í tölvuverum Reiknistofnunar hafa nemendur aðgang að fyrsta flokks tölvuaðstöðu. Um er að ræða yfir 300 tölvur í 15 tölvuverum. Hvar eru tölvuverin? Tölvuverin eru staðsett víðsvegar um háskólasvæðið (sjá kort á miðopnu). Í öllum þeirra er að finna Windows stýrikerfi en í tölvuveri HT- 204 á Háskólatorgi er einnig MacOS stýrikerfi. Á vef Reiknistofnunar er að finna allar helstu upplýsingar um tölvuverin þ.á m. upplýsingar um opnunartíma tölvuvera, uppfærslur á hugbúnaði, lýsingu á vélbúnaði auk upplýsinga um stundatöflur tölvuvera. www.rhi.hi.is/tolvuver Hvað þarf ég að vita áður en ég skrái mig inn í tölvu í tölvuveri? Ákveðnar reglur gilda varðandi umgengni í tölvuverum og eru notendur vinsamlegast beðnir um að virða þær: Sýnið öðrum notendum tillitssemi Það er óheimilt að neyta matar og drykkjar í tölvuverunum Það er bannað að tala í farsíma Rýmið tölvuver tafarlaust þegar húsinu er lokað eða þegar kennslustund hefst Gangið snyrtilega um og gangið frá eftir ykkur þegar þið yfirgefið tölvuver Óheimilt er að taka frá tölvu á einn eða annan hátt. Ef notandi yfirgefur tölvu í lengri tíma er öðrum notendum frjálst að yfirtaka hana Það er afar mikilvægt að notendur muni eftir því að skrá sig úr tölvum í tölvuveri eftir notkun til þess að koma í veg fyrir að aðrir notendur geti nýtt sér aðganginn og þar á meðal prentkvótann. Prentun Hvar er hægt að prenta út? Nemendur geta prentað út í öllum tölvuverum Háskólans. Hægt er að kaupa prentkvóta hjá þjónustuborðinu á Háskólatorgi, Menntasmiðju í Stakkahlíð eða í Uglu með kreditkorti. Þá er valið Tölvuþjónusta - > Prentkvóti. Hver prenteining kostar 7 krónur og er verðskráin sem hér segir: Svört-hvít prentun: 1 eining (7 kr.) Svört-hvít prentun á báðar hliðar: 2 einingar (14 kr.). Blekið er dýrara en pappírinn og því kostar það tvær einingar að prenta á báðar hliðar (en trén verða þakklát) Litaprentun: 5 einingar (35 kr.) Ath. þegar prentað er út í lit gerir prentarinn ekki greinarmun á því hvort síðan er í svörtu eða lit. Þegar þú sendir prentun á prentarann velur þú hvort þú viljir prenta út í lit eða svörtu. Þannig er skynsamlegt að prenta út litaðar síður sér og svartar sér til þess að borga ekki fyrir litaprentun á síðum sem innihalda einungis svartan texta. Litaprentara er að finna í eftirfarandi tölvuverum: Háskólatorg (HT-204) Árnagarður (Á-318) www.rhi.hi.is/litaprentun Hvar get ég ljósritað og/eða skannað? Reiknistofnun er ekki með ljósritunarvélar á sínum snærum en er með skanna þess í stað. Skannarnir senda gögnin á netfang þess sem á að fá þau. Eftir að gögnin berast með tölvupósti er hægt að prenta þau út. Það kostar ekkert að skanna. Skanna er að finna í eftirfarandi tölvuverum: Háskólatorg (HT-204) Askja (N-166) VR-II (V02-260) www.rhi.hi.is/skannar 8 9

Heimasvæði Um leið og notendanafni er úthlutað fær notandi aðgang að heimasvæði en stærð heimasvæða nemenda er 4GB. Gott er að venja sig á að geyma mikilvæg verkefni og skjöl inn á heimasvæðinu því á hverri nóttu er tekið afrit af öllum gögnum sem vistuð eru á heimasvæðum notenda. Það yrði því hámark dags verk sem tapast ef tölva notanda bilar eða týnist. Gögnin á heimasvæðinu má nálgast á ýmsan hátt: Með því að mappa svæðið þannig að það líti út eins og hver annar harður diskur í tölvunni Í Uglu er hægt að nálgast svæðið með því að fara undir Uglan mín - > Skrárnar mínar. Ath. ef unnið er með skjölin í gegnum Uglu þarf fyrst að vista skjalið í tölvunni. Þegar búið er að gera tilteknar breytingar á skjalinu þarf að vista það og hlaða því aftur inn í Uglu Í tölvuverum má finna skjölin undir Skjöl eða Documents Hægt er að nota SFTP tengingar til að opna heimasvæðið. Slóðin (server name) er þá katla.rhi. hi.is. Best er að notast við SFTP tengingu frekar en FTP. Sama notendanafn og lykilorð er notað og inn á Uglu www.rhi.hi.is/heimasvaedi Á vefsíðu Reiknistofnunar er að finna þær stillingar sem þarf til að tengja þessi tæki og forrit við póstinn. Reiknistofnun mælir með póstforritinu Thunderbird fyrir tölvur í þessum tilgangi en flest önnur forrit er einnig hægt að nota. www.rhi.hi.is/tolvupostur Er rafrænt dagatal í boði? Í Sogo (postur.hi.is) er að finna dagatal sem hægt er að tengja við önnur forrit og önnur tæki á svipaðan hátt og tölvupóstinn. Dagatalið býður upp á ýmsa möguleika og geta notendur t.d. deilt dagatölum sínum með öðrum notendum eða haft þau til einkanota. Frekari leiðbeiningar er að finna á heimasíðu okkar. www.rhi.hi.is/sogo_dagatal Nettengingar Tölvupóstur og dagatal Nokkrar leiðir standa nemendum til boða til þess að tengjast neti háskólans (HINET). Allir notendur fá sitt eigið netfang sem samanstendur af notendanafni og @hi.is fyrir aftan það. Notandi notar Uglu notendanafn og lykilorð til þess að skrá sig inn í tölvupóstinn. Nemendur hafa 1GB geymslupláss í tölvupóstinum. Hvernig nálgast ég tölvupóstinn minn? Þráðlaust net á háskólasvæðinu Algengasta tenging nemenda við netið á háskólasvæðinu er í gegnum þráðlausa netið (WiFi). Netið er sýnilegt sem HINET þegar leitað er að þráðlausu neti á háskólasvæðinu. Notendur þurfa að skrá tölvur og önnur tæki til þess að tengjast þráðlausa netinu. Það er auðvelt að skrá og afskrá tæki í Uglu. Nemendur geta haft tvö tæki skráð í einu á þráðlausa netinu (t.d. tölvu og síma) og er sótt um skráningu í Uglu. Ítarlegar leiðbeiningar er að finna á vefsíðu Reiknistofnunar. Þar er farið yfir það hvernig á að tengja tækin skref fyrir skref. www.rhi.hi.is/wifi Það eru nokkrar leiðir til að nálgast tölvupóstinn sinn. Í fyrsta lagi er hægt er að nálgast hann í gegnum vafra á postur.hi.is. Þar er vefviðmót sem kallast Sogo en það er einfalt í notkun. Einnig er hægt að nálgast vefpóstinn gegnum vafra á webmail.hi.is eða gegnum tengil í Uglu. Í öðru lagi er hægt að notast við öll helstu tölvupóstforrit til að nálgast hann og er auðvelt að stilla þau fyrir háskólapóstinn. Í þriðja lagi er svo hægt að notast við snjallsíma fyrir póstinn. 10 11

Eduroam Eduroam (Educating roaming) er þráðlaust net sem hægt er að tengjast með auðkenni frá ýmsum rannsókna- og háskólanetum víðs vegar að í heiminum. Þannig geta notendur HÍ notast við eduroam í fjöldann öllum af erlendum skólum án þess að sækja sérstaklega um það. Sama á við um erlenda gesti sem koma til Íslands, þeir geta tengst við net HÍ án þess að þurfa að sækja sérstaklega um það svo lengi sem skólinn þeirra sé einnig tengdur eduroam. Stillingar má finna á eftirfarandi vefsíðu. Sjá kort á miðopnu í hvaða byggingum eduroam er virkt. www.rhi.hi.is/eduroam Garðanet Íbúar á Stúdentagörðum HÍ hafa aðgang að neti í gegnum kapal og þarf að sækja um það í Uglu. Einungis sá sem skráður er fyrir íbúðinni getur sótt um Garðanetið. Ekki er þráðlaust net á Görðunum og því þarf hver og einn að verða sér úti um tilskilinn búnað (beinir/router) vilji viðkomandi setja upp þráðlaust net í sinni íbúð. www.rhi.hi.is/gardanet VPN tenging Það er hægt að tengjast HINET með VPN (Virtual private network) nánast hvaðan sem er í heiminum, svo lengi sem tölvan er nettengd og það er ekkert sem hindrar VPN tengingar. Ekki þarf að sækja sérstaklega um VPN tengingu en það þarf að setja hana upp í viðkomandi tölvu. www.rhi.hi.is/vpn_tengingar ADSL tenging Til að tengjast beint við HINET að heiman þarf að sækja um ADSL tengingu í gegnum Reiknistofnun og er það gert í Uglunni: Tölvuþjónusta- > Nettenging- > ADSL. Viðkomandi þarf að hafa virka ADSL línu frá símafyrirtæki og greiða fyrir hana sjálfur en umferðin fer í gegnum Reiknistofnun og er ókeypis. www.rhi.hi.is/adsl áhrif sem niðurhal þeirra hefur á heildarbandvídd tölvunetsins og notkunarmöguleika annarra notenda á sama tíma. Notendur geta átt von á aðvörunum, takmörkuðum aðgangi og jafnvel lokun á nettengingu ef um of mikla umferð er að ræða á einum sólahring. Gagnlegir tenglar Hér er að finna tengla á síður sem innihalda gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema: Gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema: www.hi.is/skolinn/nynemar Háskóli Íslands - ytri vefur: www.hi.is Þjónustuborð Háskólatorgi: www.hi.is/skolinn/haskolatorg_thjonustubord Nemendaskrá: www.hi.is/skolinn/nemendaskra Menntasmiðja: www.vefir.hi.is/smidja/ Kort og byggingar: www.hi.is/adalvefur/kort_af_haskolanum Alþjóðaskrifstofa: www.hi.is/skolinn/althjodaskrifstofa Félagsstofnun Stúdenta: www.fs.is Stúdentagarðar: www.studentagardar.is/ Stúdentaráð ofl.: www.student.is Bóksala stúdenta: www.boksala.is Rafræn orðabók: www.snara.is Hvað má ég hlaða miklu niður í gegnum HINET? Nettenging HINET við útlönd er takmörkuð auðlind. Notendur verða ávallt að hafa í huga þau Tillögur um úrbætur á efni þessa bæklings eru vel þegnar. Koma má slíkum ábendingum á framfæri með tölvupósti: help@hi.is 12 13

Kort af háskólasvæðinu - Vesturbær Main Campus Map www.english.hi.is/node/16416